Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Valmynd

Háu­bakk­ar

Á svæðinu er að finna þykk setlög sem bera merki um áhrif loftslagsbreytinga á ísöld.

Aðgengi og upplýsingar

Friðlýsta svæðið á Háubökkum er staðsett innst í Elliðaárvogi í Reykjavík. Svæðið liggur að Súðarvogi í vestri, að Naustavogi í austri og að mótum gatnanna tveggja í suðri.

Upplýsingar

Friðlýsing

Háubakkar voru friðlýstir sem náttúruvætti árið 1983. Á svæðinu er að finna þykk setlög sem bera merki um áhrif loftslagsbreytinga á ísöld.

Náttúruvætti eru náttúrumyndanir sem mikilvægt er að varðveita sakir fræðilegs gildis, fegurðar eða sérkenna. Markmiðið með friðlýsingu Háubakka er verndun fágætra jarðminja svæðisins í núverandi mynd.

Náttúruvættið er 2,1 hektarar að stærð.