Grafarvogur í heild sinni flokkast sem leirulón, en þau einkennast af tiltölulega víðáttumiklum leirum sem þorna upp að mestu þegar lágsjávað er. Sjávarföll eru gjarnan mikil og dýpi lítið. Grunnir árfarvegir og álar eru þó undir ferskvatni á fjöru en fyllast af sjó á flóði. Það á við um Grafarvoginn þar sem Grafarlækur fellur í austurbotn vogarins sem og ónefndur lækur í suðausturhluta vogsins. Á háfjöru eru árfarvegirnir vel sýnilegir langt vestur með voginum.
Friðlýsta svæðið er 0,5 km2
Upplýsingar
Friðlýsing
Grafarvogur var friðlýstur sem friðland þann 4. mars 2026. Markmið friðlýsingar svæðisins er að viðhalda og vernda til framtíðar náttúrulegt ástand gróðurs, mikilvægs búsvæðis fugla og sjávarhryggleysingja auk líffræðilegrar fjölbreytni þannig að það fái að þróast samkvæmt náttúrulegum lögmálum og á eigin forsendum. Friðlýsingin miðar einnig að því að styrkja útivistar-, rannsókna- og fræðslugildi svæðisins.
