Líffræðileg fjölbreytni friðlandsins í Flatey byggir á ríkilegu fæðuframboði og hentugum búsvæðum. Þar eru varpsvæði fágætra fuglategunda með hátt vísinda- og fræðslugildi.
Friðlýsing
Austurhluti Flateyjar var fyrst friðlýstur árið 1975 vegna fuglaverndar en árið 2021 var friðlýsingin endurskoðuð og friðlandið stækkað. Meginmarkmið friðlýsingarinnar er að vernda sérstætt og fjölbreytt lífríki og búsvæði fugla, einkum varpsvæði fágætra fuglategunda. Einnig að tryggja rannsóknir og vöktun á lífríki svæðisins, með áherslu á búsvæði og afkomu varpfugla og að tryggja fræðslu um fuglalífið í eynni og nágrenni hennar.
Friðlandið er 1,62 km2 að stærð og nær yfir Flatey, austan línu sem dregin er þvert frá Lundabergi að vestan að austanverðri eynni við lóðarmörk Klausturhóla, svo og eftirtaldar eyjar og hólma er liggja suður af Flatey: Akurey, Langey, Hádegishólmi, Geirhólmi, Kerlingarhólmi, Máfeyjar, Flathólmi og Lágmúli. Þar sem friðlandið nær í sjó fram tekur friðlýsingin til hafsbotns, lífríkis og vatnsbols.
Sérreglur sem um svæðið gilda eru eftirfarandi:
- Kvikmyndatökur, listviðburðir og samkomuhald í friðlandinu er óheimilt nema að fengnu leyfi Náttúruverndarstofnunar.
- Óheimilt er að lenda þyrlum/mönnuðum loftförum innan friðlandsins nema að fengnu leyfi Náttúruverndarstofnunar. Undanþegið banninu eru leitar- og björgunaraðgerðir.
