Dynjandi er eitt þekktasta kennileiti Vestfjarða. Hann er af mörgum talinn meðal tignarlegustu fossa á Íslandi og fegurð hans er rómuð. Dynjandi er 99 metrar á hæð og efstur í fossastiga Dynjandisár en neðan hans eru sjö fossar til viðbótar hvaðan áin rennur stutta leið til sjávar.
Aðgengi og upplýsingar
Friðlýsing
Dynjandi og aðrir fossar í Dynjandisá ásamt umhverfi þeirra var friðlýst sem náttúruvætti árið 1981. Markmið friðlýsingarinnar er að vernda Dynjanda og aðra fossa í Dynjandisá ásamt umhverfi þeirra við Dynjandisvog.
Mörk Náttúruvættisins eru frá odda Meðalness upp í fjallseggjar og með fjallsbrúnum umhverfis voginn og Dynjandisdal allt að mörkum jarðarinnar Dynjanda í Urðarhlíð og með þeim til sjávar.
Stærð náttúruvættisins er 6,4 ferkílómetrar að flatarmáli.
