Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Valmynd

Viltu móta framtíð Vatna­jök­uls­þjóð­garðs?

Svæðisstjórn Vatnajökulsþjóðgarðs hefur ákveðið að ráðast í heildarendurskoðun stjórnunar- og verndaráætlunar þjóðgarðsins.

1.október 2026

Verkefnislýsing vegna endurskoðunarinnar hefur nú verið birt til kynningar. Opið er fyrir umsagnir og ábendingar í fjórar vikur.

Í verkefnislýsingunni er farið yfir hvernig staðið verður að endurskoðun áætlunarinnar, hvaða viðfangsefni verða tekin til skoðunar og hvernig samráði við hagaðila og almenning verður háttað.

Stjórnunar- og verndaráætlunin er eitt mikilvægasta stjórntæki þjóðgarðsins. Þar er mörkuð stefna um verndun, landnotkun, samgöngur, innviði, þjónustu, atvinnustarfsemi og aðra nýtingu innan þjóðgarðsins. Fyrsta útgáfa stjórnunar- og verndaráætlunar tók gildi í febrúar 2011. Nú er í gildi þriðja útgáfa, frá 2022, sem inniheldur ýmsar breytingar og nokkra viðauka fyrir svæði sem hafa bæst við þjóðgarðinn á liðnum árum. Að loknu endurskoðunarferli verður til 4. útgáfa áætlunarinnar.

Verkefnislýsingin er fyrsta skrefið í vinnu við endurskoðun. Nú gefst tækifæri til að koma á framfæri sjónarmiðum, þekkingu og ábendingum áður en vinna við sjálfa áætlunina heldur áfram.

Í verkefnislýsingunni eru einnig settar fram spurningar sem ætlað er að hvetja lesendur til ígrundunar um helstu viðfangsefni endurskoðunarinnar og kalla fram sjónarmið sem geta nýst í áframhaldandi vinnu.

Kynningarfundur 7. október

Opinn kynningarfundur um verkefnislýsinguna verður haldinn á netinu þann 7. október milli 17:00 og 18:00 þar sem verkefnið verður kynnt.

Umsagnarfrestur er til og með 28. október 2026.

Verkefnislýsinguna og upplýsingar um verkefnið má nálgast hér.

Umsögnum og ábendingum má skila á netfangið stjornogvernd.vatnajokull@nattura.is .

Umsagnir og viðbrögð við þeim verða birt á vef að lokinni úrvinnslu.