Mannamót eru kynningarvettvangur ferðaþjónustunnar á landsbyggðinni og tækifæri til að koma á fundum fagaðila í greininni.
Sú hefð hefur skapast að svæði Vatnajökulsþjóðgarðs taka þátt til skiptis. Í ár mættu fulltrúar frá norðursvæði, þær Stefanía Eir, Hulda og Sif.

Frá Snæfellsjökulsþjóðgarði stóðu Una Sóley og Guðmundur vaktina. Mikil uppbygging hefur átt sér stað í Snæfellsjökulsþjóðgarði undanfarin ár og ber þar helst að nefna nýja sýningu í þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi sem ber nafnið Undur Snæfellsjökuls. Áherslur í sýningunni eru jarðfræði og dulúð Snæfellsjökuls, þjóðsögur og staðreyndir og sögur um hin fjölbreyttu svæði þjóðgarðsins.
Gott samtal og þekking milli ferðaþjónustunnar og þjóðgarðanna skiptir miklu máli til að ná að uppfylla markmið þjóðgarðanna um verndun náttúru- og menningarminja, aðgengi, upplifun og fræðslu um náttúru- og menningarverðmæti hans.
