Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Valmynd

Sum­ar­störf hjá Nátt­úru­vernd­ar­stofn­un

Óskum eftir landvörðum og þjónustufulltrúm í sumarstörf.

28.janúar 2026

Hvernig hljómar sumar með náttúru Íslands?

Náttúruverndarstofnun auglýsir nú fjölbreytt störf landvarða og þjónustufulltrúa laus til umsóknar. Umsóknarfrestur er til og með 16. febrúar 2026.

Náttúruverndarstofnun leitar að metnaðarfullum og jákvæðum einstaklingum til að ganga til liðs við frábæran hóp landvarða og þjónustufulltrúa sem starfa á friðlýstum svæðum og í þjóðgörðum víðs vegar um landið. Auglýst er eftir landvörðum á láglendi og hálendi í sumarstörf ásamt þjónustufulltrúum í fjölbreytt störf í gestastofum og á tjaldsvæðum.

Nánari upplýsingar um störfin má finna hér.