Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Valmynd

Störf í boði: Verk­efna­stjóri fram­kvæmda

Eitt af okkar stærstu verkefnum í náttúruvernd er uppbygging innviða með bætt aðgengi, öryggi og verndun að leiðarljósi. Framundan eru margvísleg og spennandi verkefni á þessu sviði.

18.febrúar 2026

Náttúruverndarstofnun óskar eftir að ráða skipulagðan og metnaðarfullan einstakling í verkefnastýringu framkvæmdaverkefna á friðlýstum svæðum. Verkefnin eru fjölþætt en felast einkum í  uppbyggingu innviða og landvarðahúsa og utanumhaldi því tengdu. Verkefnastjórinn mun halda utan um framkvæmdir á svæðunum í nánu samstarfi við þjóðgarðsverði og svæðisstjóra. Starfinu fylgja mikil samskipti við framkvæmdaaðila og opinbera aðila. Um fullt starf er að ræða sem tilheyrir Þróunarsviði Náttúruverndarstofnunar.

Náttúruverndarstofnun starfar á 16 starfsstöðvum um landið sem eru:  Hvolsvöllur, Geysir, Selfoss, Garðabær, Hellissandur, Hvanneyri, Patreksfjörður, Ísafjörður, Akureyri, Gígur í Mývatnssveit, Egilsstaðir, Ásbyrgi, Skaftafell, Höfn í Hornafirði, Kirkjubæjarklaustur og Reyðarfjörður. Vinnustaðurinn okkar er fjölbreyttur og lifandi með starfsemi vítt og breitt um landið. Við búum yfir mikilli sérfræðiþekkingu, höfum tækifæri til að þróast í starfi og ástunda endurmenntun.

Ýtið hér fyrir nánari upplýsingar og til að sækja um