Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Valmynd

Bjóðum fuglum heim

Bjóðum fuglum heim er nýtt slagorð verkefnisins Peatland LIFEline.

27.febrúar 2026

Meðfylgjandi eru mynd af vinningshafa slagorðasamkeppninnar og verkefnastjóra Mýralífs.

Bjóðum fuglum heim er nýtt slagorð verkefnisins Peatland LIFEline. Blásið var til slagorðasamkeppni á samfélagsmiðlum á meðal almennings til að fanga anda íslensks votlendis, endurheimtar og tenginu við náttúru. Höfundur slagorðsins er Christian Schultze, rannsókna- og alþjóðafulltrúi hjá LBHÍ. Dómnefnd skipuðu Andri Snær Magnason rithöfundur, Bragi Valdimar Skúlason textasmiður og Bára Huld Beck kynningarstjóri verkefnisins. 

Frestur rann út þann 16. janúar síðastliðinn og bárust alls 23 tillögur. Mörg hnyttin og skemmtileg slagorð voru meðal tillagna en var það einróma álit dómnefndar að vinningsslagorðið ætti best við verkefnið. Í umsögn dómnefndar segir: „Bjóðum fuglum heim er fallegt slagorð og rímar geysilega vel við markmið verkefnisins og nýtt merki/lógó þess sem er af fuglinum jaðrakan. Slagorðið er heimilislegt og kammó – og hljómar vel í okkar eyrum.“

Ásamt slagorðinu er komið íslenskt nafn fyrir verkefnið: Mýralíf. Þykir það vera í miklu samræmi við tilgang verkefnisins og passar vinningsslagorðið einstaklega vel við nýja nafnið. 

Um verkefnið

Mýralíf (Peatland LIFEline) er umfangsmikið verkefni sem miðar að endurheimt votlendis og líffræðilegrar fjölbreytni á Íslandi. Verkefnið er samstarf sjö stofnana og félagasamtaka: Landbúnaðarháskóla Íslands, Lands og skógar, Náttúrufræðistofnunar, Fuglaverndar, Hafrannsóknastofnunar, Náttúruverndarstofnunar og bresku fuglaverndarsamtakanna RSPB. Verkefnið er að mestu fjármagnað af LIFE-áætluninni, sem er hluti af umhverfis- og loftslagsáætlun Evrópusambandsins. Það hófst formlega 1. september 2025 og stendur til loka febrúar 2031, eða í 66 mánuði.

Markmið Mýralífs er að efla yfirsýn og þekkingu á íslensku láglendisvotlendi, vistfræði þess, líffræðilegri fjölbreytni og hlutverki í kolefnishringrásinni. Sérstök áhersla er lögð á vistgerðina starungsmýravist, sem hefur mjög hátt verndargildi, auk fuglategundanna jaðrakans, stelks og lóuþræls, sem eru mikilvægir vísar um heilbrigði votlendis. Einnig verður sjónum beint að evrópska álnum sem er í útrýmingarhættu. 

Íslenskt votlendi er einstakt í Evrópu, meðal annars vegna samspils ungs berggrunns, eldvirkni, áfoks og eldgosasögu. Þéttleiki fuglalífs er mikill og nokkrar tegundir reiða sig að stórum hluta á þessi svæði. Verkefnið mun leggja grunn að betri yfirsýn yfir ástand votlendissvæða og helstu áskoranir við endurheimt þeirra, auk þess sem lögð er áhersla á samfélagslega þátttöku og miðlun þekkingar.

Mýralíf