Opnaður hefur verið nýr stígur og útsýnispallur við Gullfossi. Stígurinn er framhald af stígakerfi svæðissins sem unnið hefur verið við að bæta og endurbyggja síðustu ár.
Byggður hefur verið útsýnispallur sem býður gestum upp á stórkostlegt útsýni yfir Gullfoss og Hvítárgljúfur og er viðbót við þá útsýnispalla sem fyrir eru.
Náttúrverndarstofnun hefur síðustu ár lagt mikla áherslu á uppbyggingu á friðlýstum svæðum til verndar náttúru en einnig til að bæta aðengi og upplifun gesta.
Þessar framkvæmdir eru síðasti áfangi uppbyggingar á efra svæði við Gullfoss.
Mikil umferð er um Gullfoss allt árið en yfir milljón gestir heimsækja svæðið árlega. Það er því mikilvægt að innviðir virki allt árið um kring t.d. þarf að vera hægt að sinna snjómokstri og hálkuvörnum yfir veturinn.
Með nýjum stíg er vonast til þess að dreifing gesta verði betri á álagstímum auk þess sem aðgengi og öryggi gesta er bætt.
