Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni á vegum Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) sem hefur það að markmiði að stuðla að jafnari kynjahlutföllum í efstu stjórnunarstöðum íslenskra fyrirtækja og stofnana.
Viðurkenningin er ánægjulegur áfangi fyrir Náttúruverndarstofnun og hvatning til að halda áfram að byggja upp vinnustað þar sem allt starfsfólk hefur jöfn tækifæri til að þróast í starfi, taka ábyrgð og hafa áhrif.
Fjölbreytileiki í stjórnun stuðlar að víðari sýn, vandaðri ákvarðanatöku og sterkari vinnustaðamenningu. Með því að leggja áherslu á jafnrétti og fjölbreytileika styrkjum við starfsemi stofnunarinnar og sköpum betri forsendur til að sinna fjölbreyttum verkefnum hennar.

Náttúruverndarstofnun þakkar Jafnvægisvoginni fyrir viðurkenninguna og starfsfólki stofnunarinnar fyrir sitt framlag.
Jafnrétti er ekki verkefni sem lýkur heldur stöðug vinna. Viðurkenningin er því ekki aðeins staðfesting á árangri heldur einnig hvatning til að halda áfram að efla jafnrétti, virðingu og jöfn tækifæri innan stofnunarinnar.
