Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Valmynd

Lokun hellis við Jarð­baðs­hóla fram­lengd

Tekin hefur verið ákvörðun um að framlengja lokun hellis sem fannst við Jarðbaðshóla í Mývatnssveit vorið 2023

16.apríl 2026

Tekin hefur verið ákvörðun um að framlengja lokun hellis sem fannst við Jarðbaðshóla í Mývatnssveit vorið 2023. Hellirinn verður lokaður í ár til viðbótar eða til 19. apríl 2027 og tekur framlengingin gildi 19. apríl næstkomandi. Lokunin er samkvæmt 25. gr. a laga nr. 60/2013 um náttúruvernd.

Þann 17. febrúar árið 2025 auglýsti Náttúruverndarstofnun áform um friðlýsingu hellisins og lauk athugasemdafresti þann 19. mars. Nú er unnið að friðlýsingarskilmálum fyrir hellinn en þó er ljóst að þörf er lengri tíma en til 19. apríl til að klára þá vinnu.

Náttúruverndarstofnun telur nauðsynlegt að hellirinn verði áfram lokaður meðan unnið er að friðlýsingu hans til að tryggja verndun útfellinga í hellinum til frambúðar. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur nú staðfest ákvörðun stofnunarinnar en samráð var haft við hagsmunaaðila þegar ljóst var að þörf væri á framlengingu lokunarinnar. 

Nánari upplýsingar um hellinn má finna hér.