Náttúruverndarstofnun auglýsir til umsóknar starf umdæmisstjóra náttúruverndarsvæða á suður- og suðvesturlandi. Margar af þekktustu náttúruperlum landsins eru í umdæminu svo sem Friðland að Fjallabaki, Gullfoss, Geysir, Kerlingafjöll, Skógafoss og Dyrhólaey ásamt fjölmörgum friðlýstum svæðum á höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesi.
Helsta hlutverk umdæmisstjóra og starfsfólks umdæmis er að viðhalda verndargildi svæðanna og sjá til þess að upplifun gesta sem sækja áfangastaðina heim sé sem best.
Umdæmisstjóri þarf að hafa stefnumiðaða sýn varðandi þróun svæðanna til framtíðar og ber ábyrgð á rekstri friðlýstra svæðaásamt því að sinna almennum náttúruverndarmálum sem tengjast landshlutanum. Umdæmisstjóri vinnur þétt með öðrum umdæmisstjórum stofnunarinnar.
Leitað er að kraftmiklum einstaklingi sem vill nýta þekkingu á stjórnun og áhuga á náttúruvernd til að taka þátt í þróun náttúruverndar, samstarfi og þjónustu við gesti á svæðinu. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf þar sem frumkvæði og sjálfstæði fá að njóta sín. Starfsstöð er á Hvolsvelli.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á rekstri umdæmis
- Fjárhagsáætlunargerð og eftirfylgni
- Leiða teymi sérfræðinga á svæðinu
- Ábyrgð á mannauðsmálum umdæmis
- Ábyrgð á uppbyggingu áfangastaða á starfssvæði
- Samvinna með sveitarfélögum á svæðinu
- Þróun og stefnumótun svæðisins
Hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Frammúrskarandi samskipta- og samstarfsfærni
- Leiðtogahæfileikar
- Reynsla af stjórnun og rekstri æskileg
- Geta til að þróa hugmyndir og verklag
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Áhugi og þekking á náttúruvernd og umhverfismálum
- Þekking á starfsemi friðlýstra svæða er kostur
- Þekking á stjórnsýslu er kostur
- Þekking og reynsla af landvörslu er kostur
- Gott vald á íslensku og ensku
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Vinsamlegast látið ferliskrá og kynningarbréf fylgja umsókninni þar sem færð eru rök fyrir hæfni í starfið.¿Við hvetjum áhugasöm til að sækja um óháð kyni og uppruna.¿Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar veitir Margrét Jóna Ísólfsdóttir mannauðsstjóri margret.jona.isolfsdottir@nattura.is og Inga Dóra Hrólfsdóttir inga.dora.hrolfsdottir@nattura.is sviðsstjóri Landvörslusviðs
Umsóknarfrestur er til og með 7. maí 2026.
Um Náttúruverndarstofnun
Stofnunin hefur víðtækt hlutverk í náttúruvernd, sjálfbærri þróun og vernd friðlýstra svæða ásamt umsjón með villtum dýrum og veiðistjórnun. Markmið hennar er að tryggja að náttúra Íslands njóti verndar til framtíðar.¿ Hjá Náttúruverndarstofnun starfar samheldinn hópur starfsmanna með fjölbreytta reynslu, sem sinnir margvíslegum verkefnum tengdum náttúruvernd og þjónustu við gesti þjóðgarða og annarra friðlýstra svæða. Starfsstöðvar stofnunarinnar eru 16 um allt land.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 07.05.2026
Nánari upplýsingar veitir
Inga Dóra Hrólfsdóttir
Tölvupóstur: inga.dora.hrolfsdottir@nattura.is
Margrét Jóna Ísólfsdóttir
Tölvupóstur: margret.jona.isolfsdottir@nattura.is
-1-2000x1001.png&w=3840&q=80)