Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Valmynd

Stjórn­unar- og vernd­ar­áætl­un Hver­fjalls í Mý­vatns­sveit staðfest

Endurskoðuð stjórnunar- og verndaráætlun fyrir náttúruvættið Hverfjall var staðfest af Jóhanni Páli Jóhannssyni ráðherra mánudaginn 2. febrúar.

10.febrúar 2026

Endurskoðuð stjórnunar- og verndaráætlun fyrir náttúruvættið Hverfjall var staðfest af Jóhanni Páli Jóhannssyni, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, mánudaginn 2. febrúar. Áætlunin var unnin í samstarfi landeigenda og Náttúruverndarstofnunar og er ætlað að skapa mikilvæga umgjörð um verndun og stýringu á svæðinu í framtíðinni.

Áætlunin var auglýst til kynningar 4. apríl 2025 og var gefinn að lágmarki 6 vikna frestur  til að gera athugasemdir. Athugasemd barst frá Náttúrufræðistofnun. Þá tók sveitarstjórn Þingeyjarsveitar áætlunina til skoðunar og gerði ekki athugasemdir.

Stjórnunar- og verndaráætlun friðlýstra svæða sem friðlýst eru á grundvelli laga nr. 60/2013 um náttúruvernd byggja á 81. gr. laganna. Þar segir að Náttúruverndarstofnun beri ábyrgð á að gerð sé áætlun fyrir friðlýst svæði. Stjórnunar- og verndaráætlun er endurskoðuð eftir þörfum og er fjallað um forsendur endurskoðunar í lok áætlunarinnar. Forsenda þess að áætlunin þjóni tilgangi sínum er að hún taki breytingum eftir aðstæðum og að hún þjóni verndargildi svæðisins ásamt því að gera almenningi mögulegt að upplifa náttúruna án þess að raska henni. Það er von Náttúruverndarstofnunar að áætlunin sé heillaskref til reksturs og samstarfs um að þjóna náttúru svæðisins í framtíðinni.

Stjórnarráð Íslands - Sjá frétt