Í samræmi við gildandi deiliskipulag sveitarfélagsins Rangárþing eystra og stjórnunar- og verndaráætlun Náttúruverndarstofnunar fyrir náttúruvættið Skógafoss, Er gert ráð fyrir að hefja endurheimt svæðisins eftir að bílastæðum innan marka friðlýsta svæðisins hafa verið lokað og ný bílastæði Rangárþings eystra opnuð utan svæðis.
Á grundvelli þessara áætlana munu verktakar starfa á svæðinu frá miðjum maí til loka maí við að endurheimta náttúrulegt ástand svæðisins á gömlu bílastæðunum.
Til að tryggja öryggi gesta verður athafnasvæðið afmarkað með skýrum merkingum.
Núverandi gönguleið frá nýja bílastæðinu að fossinum er þó áfram opin fyrir gesti. Allt rask sem til kemur vegna framkvæmda verður lagfært.
-2000x1001.png&w=3840&q=80)