Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Valmynd

Fjör og fjöl­menni í fjöru­ferð við Gróttu

Um 200 manns mættu til að kynnast töfrum fjörunnar.

21.apríl 2026

Síðastliðin sunnudag þann 19. apríl buðu Náttúruverndarstofnun, Náttúruminjasafn Íslands og Hafrannsóknarstofnun í fræðandi fjöruferð. Viðburðurinn vakti mikla lukku en um 200 manns mættu til að kynnast töfrum fjörunnar.


Hægt var að skoða það sem fannst í bökkum og fá fræðslu frá þeim sem til þekktu. Börn og fullorðnir nutu þess að skoða fjöruna og lífríki hennar. Þar var hægt að sjá nokkrar gerðir af kröbbum, krossfisk, svampa, ýmsa kuðunga, þang og þörunga. Sérstaka athygli vöktu sprettfiskar og sprikklandi þanggeit.

Fjöruferðin hefur fest sig í sessi sem árlegur viðburður hjá Náttúruverndarstofnun og Náttúruminjasafninu og í þetta sinn tók Hafrannsóknarstofnun líka þátt. 

Það er dýrmætt að stunda útivist og njóta náttúrunnar saman en við viljum einnig minna á að Grótta er friðlýst fuglafriðland og er því ávallt lokuð fyrir allri umferð frá 1. maí og út júlí yfir varptímann.