Nú er svo komið að ferðafólki nægir ekki lengur fallegar myndir úr náttúrunni, heldur vill fólk eiga myndir af sjálfu sér við hinar ýmsu náttúruperlur.
Við Gatklett í Dimmuborgum hefur það aukist mikið að klifrað sé upp á steina og leitað að stöðum utan stíga, til að ná því sem talið er "rétt" sjónarhorn. Við það hafa orðið skemmdir á gróðri og jarðmyndunum en jafnframt hefur slysahætta verið tölverð. Og hér nálgumst við kjarna landvörslunnar, að vernda náttúruna fyrir fólki en ekki síður að vernda fólk fyrir náttúrunni.
Til að bregðast við hlóðu því hlóðu sjálfboðaliðar Náttúruverndarstofnunar, undir handleiðslu landvarða, mynda- og sjálfupall. Með 50-60cm hækkun sem pallurinn gefur er nú hægt að ná mynd af á sjálfum sér með spírur Hallarflatar rammaðar inn af Gatinu.

Hér sést hve vel pallurinn fellur inn í umhverfið

Sjónarhorn frá pallinum, með útsýni yfir turnana við Hallarflöt í bakgrunni
Þetta er þó ekki fyrsti sjálfu- og myndapallurinn í Mývatnssveit en gerður var pallur síðasta sumar við Kálfastrandarstrípa. Það var hluti af endurnýjun göngustíga en nú þegar hefur sést munur, þar sem afleiðingar af traðki á gróðri og hraunmyndunum hefur gengið til baka. Góðir innviðir í takt við tímann, með öflugri landvörslu, verndar fólk og náttúru.
