Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Valmynd

Auglýst eftir umsóknum um rekstur Vatns­hell­is í Snæ­fells­jök­uls­þjóð­garði

25.júní 2026

Náttúruverndarstofnun, kt. 700924-1570, auglýsir eftir umsóknum frá rekstraraðilum sem óska eftir að reka starfsemi í Vatnshelli í Snæfellsjökulsþjóðgarði og bjóða almenningi upp á skipulagðar ferðir og fræðslu í hellinum allan ársins hring í nánu samstarfi við stofnunina. 

Vatnshellir er hraunhellir staðsettur í Purkhólahrauni í Snæfellsjökulsþjóðgarði og var gerður aðgengilegur almenningi haustið 2009. Tilgangurinn með aðgengi almennings að hellinum er að efla fræðslu og auka við þekkingu og verndun á þeim verðmætum sem hellar og aðrar náttúruminjar eru. 

Við hellinn er þjónustuhús í eigu Náttúruverndarstofnunar sem rekstraraðila er heimilt að hafa til afnota vegna starfseminnar og gerður verður sérstakur leigusamningur um nýtingu þess. Gjaldfrjálst bílastæði fyrir gesti er í nágrenni við þjónustuhúsið. Rekstraraðili skal bjóða upp á daglegar ferðir í hellinn allt árið. Rekstraraðili skal tryggja öryggi gesta og eftirlit með öryggi hellisins, sbr. hrun- eða fallhættu og ástand innviða. Bjóðandi skal bjóða upp á leiðsögn að lágmarki á íslensku og ensku. 

Náttúruverndarstofnun auglýsir því eftir umsóknum frá þeim rekstraraðilum sem vilja bjóða upp á hellaferðir í atvinnuskyni í Vatnshelli. Gerður verður einn sérleyfissamningur samkvæmt lögum um nýtingu á landi í eigu ríkisins í atvinnuskyni nr. 100/2021, við umsækjanda sem uppfyllir nánar tiltekin skilyrði. Samningurinn mun gilda til 1. janúar 2032 með möguleika á framlengingu tvisvar sinnum til eins árs í senn. Samningur mun taka gildi 1. janúar 2027. Ferðir þurfa að hefjast skv. samningi í síðasta lagi 10. janúar 2027. Fjöldi gesta í hellinn á sólarhring skal ekki fara yfir 400 manns. Fjöldi í hellinum hverju sinni skal aldrei fara yfir 54 manns, að meðtöldum leiðsögumönnum. Í hverjum hópi skulu ekki vera fleiri en 12 viðskiptavinir. Þó er heimilt að hafa 16 viðskiptavini í hóp ef honum fylgja tveir leiðsögumenn. Náttúruverndarstofnun áskilur sér rétt á samningstímanum til að fækka leyfilegum gestafjölda í hellinum ef niðurstöður öryggisúttektar, ástandsmats, þolmarkagreiningar eða annarrar rannsóknar, sem framkvæmd er á samningstímanum, mælir með því. 

Gögn

Rekstraraðilar verða að skila inn þeim gögnum sem eru talin upp hér að neðan og uppfylla eftirtalin skilyrði:  

Mat tilboða

Gerður verður samningur við einn rekstraraðila á fyrrgreindu tímabili. Við mat á umsóknum verða eftirfarandi atriði notuð við mat og val á tilboðum. Sú umsókn sem hlýtur flest heildarstig fær forgang til samningsgerðar: 

Viðvörun fyrir bjóðendur

Athygli bjóðenda er vakin á því að verð er metið þannig að hærra verð leiðir til hærri stigagjafar. 

Bjóðendur eru hvattir til að kynna sér matsaðferðina vandlega áður en tilboð er lagt fram. 

  • Umsóknum ásamt fylgigögnum skal skilað rafrænt í gegnum island.is eigi síðar en 10. ágúst 2026. Tilboð verða ekki opnuð fyrr en umsóknartíma liðnum. Fyrirspurnir má senda á tölvupóstfangið nattura@nattura.is merkt „Fyrirspurn Vatnshellir“ og verður þeim svarað eins fljótt og auðið er. Umsækjandi ber ábyrgð á að umsókn og fylgigögn berist á umsóknartíma.

  • Sá samningur sem nú eru auglýstur gildir til fimm ára með möguleika á tveimur framlengingum til eins árs.

  • Náttúruverndarstofnun áskilur sér rétt til að vísa frá öllum umsóknum eða hafna einstökum umsóknum uppfylli þær ekki skilyrði sem tilgreind eru í auglýsingu þessari og/eða ef fullnægjandi gögn fylgja ekki umsókn.

  • Náttúruverndarstofnun mun samþykkja það tilboð sem hlýtur hæst stig í ofangreindum matskvarða.

  • Gögnum skal skila á íslensku eða ensku.

  • Ekki er heimilt að nota undirverktaka nema með fyrirfram samþykki Náttúruverndarstofnunar.

  • Öll gögn umsækjanda verða að berast innan umsóknarfrests en gögn sem berast eftir umsóknarfrest verða ekki tekin til greina. Gildistími umsókna er átta vikur frá því umsóknarfrestur rennur út. Náttúruverndarstofnun gerir ráð fyrir 30 virkum dögum til úrvinnslu umsókna.

  • Náttúruverndarstofnun hvetur umsækjendur til að vera með vottun Vakans eða sambærilega vottun í gildi, þó slík vottun sé ekki skilyrði og hefur ekki áhrif á umsókn viðkomandi.

Hlekkur á umsóknargátt www.island.is

Umsóknum ásamt fylgigögnum skal skilað rafrænt í gegnum island.is eigi síðar en 10. ágúst 2026.

Hér er að finna drög að samningsskilmálum sem eru birtir með fyrirvara um minniháttar breytingar. Þar eru að finna þær kröfur sem gerðar eru til bjóðanda. Bjóðandi skal geta staðið við skilmála á samningstímabilinu en vanefndir geta leitt til riftunar og er því mikilvægt að kynna sér skilmálana vel áður en boðið er í starfsemina