Votlendi á Íslandi eru sérstaklega mikilvæg þar sem margar fuglategundir sem hér verpa eða sækja fæðu teljast ábyrgðategundir. Það þýðir að stór hluti Evrópu- eða heimsstofns þeirra reiðir sig á Ísland. Þar má nefna fugla eins og álft, himbrima, heiðagæs, lóm, helsingja, heiðlóu, spóa, sandlóu og jaðrakan. Ef búsvæðum þessara tegunda er raskað hér á landi getur það haft alvarleg áhrif á framtíð þeirra á heimsvísu.
Votlendi á Íslandi tengjast því beint alþjóðlegum náttúruverndarmálum. Ísland er aðili að Ramsar-samningnum, alþjóðasamningi sem var settur á laggirnar vegna hnignun votlendis og fækkun votlendisfugla um allan heim.
Alþjóðamál og Ramsar samningurinn
Sem aðili að Ramsarsamningnum þá er krafa um að lönd tilnefni að minnsta kosti eitt alþjóðlega mikilvægt votlendi til samningsins. Ísland hefur tilnefnt 6 votlendissvæði á Ramsar-listann. Svæðin eru friðlýst og staðsett víðs vegar um landið og eiga það sameiginlegt að vera að mestu óröskuð ásamt því að vera mikilvæg búsvæði fuglastofna.
Ramsar svæði Íslands:
- Andakíll
- Grunnafjörður
- Guðlaugstungur
- Mývatn og Laxá
- Snæfells- og Eyjabakkasvæðið
- Þjórsárver
Menningarlegt gildi votlendis
Á hverju ári tilkynnir Ramsarsamningurinn sérstakt þema fyrir alþjóðlegan dag votlendis. Í ár er þemað menningarlegt gildi þeirra.
Á Íslandi í gegnum aldirnar gegndu votlendi lykilhlutverki í daglegu lífi fólks – til heyöflunar, byggingarefna, eldiviðar og fæðuöflunar. Fjölmargar minjar, eins og mógrafir, víðsvegar um landið er minnisvarði um það. Í mógröfum var grafinn fram mór sem var mikilvægt eldsneyti allt fram á 20. öld og eru mógrafir ein algengasta tegund fornminja á Íslandi. Mikilvægið endurspeglast einnig í örnefnum eins og mýri, flói, engi, tjörn, kelda og fen, sem segja okkur oft á tíðum sögu landsins og nýtingar þess. Úr mýrunum var svo unnið járn sem skipti sköpum fyrir landnám Íslands og þróun samfélags fyrri alda. Járnvinnslan var ákveðin grunnforsenda samfélagsins, allt frá jarðrækt til samgangna. Votlendi er svo ekki síður mikilvægt sem uppspretta sagnahefðar þjóðarinnar allt frá þjóðsögum um Nykur til glæpasagna nútímans, sem enginn skal undra því í norrænum goðsögum voru mýrar svæði milli heima, milli hins mannlega heims og hins guðlega.
Litum og lærum saman
Ramsar-samningurinn hefur gefið út plakat til að teikna í tilefni dagsins. Við hvetjum fólk til að hlaða því niður, prenta út og lita.
· Plakatið má nálgast hér: Materials - World Wetlands Day
Við hvetjum ykkur til að teikna tjörn og eina ábyrgðategund sem þar á heima. Að lokum má svo finna lýsandi nafn á votlendið. Einnig er hægt að kíkja á kort eða örnefni í ykkar nærumhverfi: Finnið þið nafn sem bendir til votlendis?
Hugsum til votlendisins í dag og hversu mikilvægt það er fyrir fuglana, jörðina og okkur fólkið. Getur þú fundið hvaða menningarlega gildi votlendi hefur fyrir þig?
Þekkir þú mögulega einhver lög sem tengjast fuglunum sem nýta votlendið?
Hér er smá vísbending: Sá ég _____ suðr'í flóa og _____ er komin að kveða burt snjóinn.
