Þann 12. ágúst verður almyrkvi á sólu sem mun sjást um vestanvert Ísland. Látrabjarg er sá staður á landi þar sem hann mun vara lengst, eða í 2 mínútur og 13 sekúndur og gert er ráð fyrir að nokkur fjöldi fólks muni leggja leið sína þangað þó afar erfitt sé að áætla um nákvæman fjölda. Þar sem vegir, bílastæði og aðrir innviðir takmarka getu svæðisins til að taka á móti miklum fjölda mun lögregla stýra umferð og telja bíla, gera má ráð fyrir lokunum eftir því sem á líður og svæðið fyllist.
Umferðarstýring bíla að Látrabjargi
- Lokunarpóstur verður settur upp við rætur Kleifaheiðar í botni Patreksfjarðar (við gatnamót Barðastrandarvegar nr. 62 og Örlygshafnarvegar nr. 612) eigi síðar en kl. 08:00 að morgni miðvikudagsins 12. ágúst. Ef aðstæður kalla á gæti lokun orðið fyrr.
- Einstefna verður á veginum fram yfir viðburðinn.
- Rútum sem bera fleiri en 19 farþegar verður ekki heimilt að aka um veginn þann 12. ágúst.
- Hámarkshraði verður lækkaður í 60 km/klst að Breiðuvík og 50 km/klst frá Breiðuvík að Látrabjargi.
- Stranglega er bannað að leggja ökutækjum á vegum eða vegöxlum.
Upplýsingar fyrir gesti
Salerni: Á Brunnum í Látravík eru tvö vatnssalerni. Á Bjargtöngum verður 20 gámasalernum komið fyrir tímabundið.
Matur og drykkur: Engin veitingasala er á Bjargtöngum eða innan friðlandsins og ekki er aðgengi að ferskvatni. Gestir þurfa að taka með sér allan mat og drykk sem ráðgert er að neyta á meðan á viðburðinum stendur. Dvalartími getur orðið nokkuð langur, ekki síst ef umferðin til baka er þung. Í Breiðuvík er veitingasala.
Aðstaða: Áningarborð og -bekkir eru mjög takmarkaðir. Gestir eru hvattir til að vera í hlýjum fatnaði, góðum skóm og taka með sér teppi eða undirlag til að matast. Öll meðferð elds er óheimil á svæðinu, þ.m.t. notkun ferðagrilla.
Úrgangur: Engin sorphirða er innan friðlandsins. Gestir þurfa að taka með sér allt það sem þeir koma með inn á svæðið.
Drónar: ávallt er óheimilt að fljúga drónum innan friðlandsins og í nágrenni friðlandsins verður tímabundið drónabann í gildi milli klukkan 15:00-19:00 að beiðni Lögreglustjórans á Vestfjörðum.
Upplýsingagjöf: Landverðir munu taka á móti öllum gestum nálægt friðlandsmörkum við Brunna og þeim verður leiðbeint um svæðið. Landverðir munu aðstoða gesti við að koma farartækjum sínum fyrir á bílastæðum og veita upplýsingar um aðgengi og innviði. Þeir munu jafnframt stýra umferð út af svæðinu að viðburðinum loknum svo allt gangi sem greiðast fyrir sig. Landverðir verða á ferð um svæðið allan daginn þann 12. ágúst. Á Bjargtöngum verður tjald þar sem landverðir og starfsfólk Náttúruverndarstofnunar munu hafa aðsetur og veita upplýsingar.
Bílastæði: Á Bjargtöngum eru bílastæði fyrir 160 bíla. Á Brunnum (utan friðlands) eru bílastæði fyrir 12 bíla. Í Breiðuvík er rými fyrir allt að 3500 bíla ef veður er þurrt.
Gangandi umferð: Hægt er að ganga frá Breiðuvík að Bjargtöngum, leiðin er um 13 km. löng.
Næturdvöl og gisting: Næturdvöl gesta innan friðlandsins er óheimil en næsta tjaldstæði er í Breiðuvík. Landverðir og starfsfólk Náttúruverndarstofnunar mun hafa næturdvöl á svæðinu dagana í kringum almyrkvann.
Umferð: Þar sem einstefna verður á umferð ættu gestir ekki að gera ráð fyrir að komast út af svæðinu eftir klukkan 8:00 að morgni 12. ágúst. Gestir ættu jafnframt að gera ráð fyrir að það muni taka nokkurn tíma að komast út af svæðinu að almyrkvanum afstöðnum. Gert er ráð fyrir að umferð gangandi verði töluverð og aðgæsla því mikilvæg.
Náttúruverndarstofnun hvetur gesti sem hyggjast sækja friðlandið Látrabjarg heim vegna almyrkva á sólu til að koma vel undirbúnir og gefa sér nægan tíma. Mikilvægt er að sýna þolinmæði, fylgja fyrirmælum og gera ráð fyrir lengri ferðatíma en venjulega.
Göngum vel um, virðum náttúruna og tökum allan úrgang með okkur. Förum varlega, sýnum öðrum gestum tillitssemi og njótum dagsins í einstakri náttúru Látrabjargs.
Góða ferð, njótið sólmyrkvans og komið heil heim.
Allar frekari upplýsingar um almyrkvann má nálgast á síðunum Eclipse 2026 og island.is, Vegagerdin.is og á heimasíðu sveitarfélagsins Vesturbyggðar
