Til baka

12 júní 2025

Veiðitími á svartfugli til skoðunar

Rannsóknir á svartfuglum við Ísland sýna að tegundir á borð við langvíu og stuttnefju hefja varpundirbúning fyrr en áður var talið. Gögn frá sjálfvirkum myndavélum og dægurritum sýna að langvíur fara að setjast upp í bjarg frá því í janúar og stuttnefjur frá lokum febrúar, en það er oft nokkrum vikum áður en fyrstu eggjum eru verpt. Á sama tíma hafa nýlegar rannsóknir á afla veiðimanna leitt í ljós að hlutfall fullorðinna fugla í veiði eykst verulega síðari hluta veiðitímabilsins (Helgason o.fl., 2022), sem hefur talsvert meiri neikvæð áhrif á stofnþróun en veiði á ungfugli.

Þegar veiðitímabil á Íslandi er borið saman við önnur lönd í Norður-Atlantshafi kemur í ljós að það er óvenju langt. Hér stendur það frá 1. september til 25. apríl, á meðan því lýkur almennt mun fyrr annars staðar: í Færeyjum 20. janúar, í Kanada frá desember til 10. mars (eftir svæðum) og á Grænlandi í lok febrúar með fáum undantekningum fyrir frumbyggjaveiðar.

Þetta er meðal þess sem er að finna í minnisblaði sem Náttúruverndarstofnun barst frá Náttúrustofu Norðausturlands og Náttúrustofu Austurlands í janúar síðastliðnum. Minnisblaðið var rætt á fundi samráðsnefndar um sjálfbærar veiðar síðar í sama mánuði og ákveðið var að setja málið aftur á dagskrá í haust.

Hálfdán H. Helgason, Yann Kolbeinsson, Páll Leifsson, Sindri Gíslason og Þorkell Lindberg Þórarinsson, 2022. Greiningar á aldurs- og tegundasamsetningu svartfugla út frá útlitseinkennum vængja. Náttúrustofa Austurlands, NA-2200224. 18 blaðsíður.