Til baka

4 september 2025

Veiðitímabil rjúpu 2025 staðfest

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur staðfest tillögur Náttúruverndarstofnunar að fyrirkomulagi rjúpnaveiða fyrir árið 2025. Þessu til staðfestingar hefur verið gefin út reglugerðarbreyting 941/2025 á reglugerð nr. 456/1994 um fuglaveiðar og nýtingu hlunninda af villtum fuglum.

Veiðitímabil 2025

Image

Tillögur samkvæmt stjórnunar- og verndaráætlun

Tillögurnar voru unnar eftir veiðistjórnunarkerfi sem tekið var upp með stjórnunar- og verndaráætlun rjúpu sem ráðherra undirritaði þann 11. september 2024. Hægt er að fræðast meira um verkefnið hér.

Veiðidagar verða heilir og heimilt er að veiða frá og með föstudögum til og með þriðjudögum innan veiðitímabils. Landinu er skipt upp í sex mismunandi veiðisvæði og ný stofnlíkön hafa reiknað út ákjósanlega lengd tímabils á hverju svæði fyrir sig.

Image

Veiðimenn sýni hófsemi

Náttúruverndarstofnun biðlar sérstaklega til veiðimanna að sýna hófsemi við veiðar. Mikilvægt er að allir hagsmunaaðilar komi að því hvatningarátaki. Sölubann á rjúpu er enn í gildi.

Ein formleg athugasemd var send inn vegna tillagnanna sem sneri að fjölda veiðidaga á Vestfjörðum. Svar má finna hér