Til baka
22 maí 2025
Tillaga að stækkun og endurskoðun friðlýsingar friðlandsins Gróttu
Náttúruverndarstofnun leggur hér með fram tillögu að stækkun og endurskoðun friðlýsingar friðlandsins Gróttu á Seltjarnarnesi í samræmi við málsmeðferðarreglur 39. gr. laga nr. 60/2013 um náttúruvernd. Tillagan er unnin af samstarfshópi sem í eiga sæti fulltrúar Seltjarnarnesbæjar, Náttúruverndarstofnunar, Minjastofnunar Íslands og fuglasérfræðingur.
Meginmarkmið með friðlýsingunni er meðal annars að stuðla að vernd líffræðilegrar fjölbreytni, samanber 2. gr. laga nr. 60/2013, með því að vernda alþjóðlega mikilvægt fuglasvæði á Seltjarnarnesi, vistgerðir þess og búsvæði fugla. Vernda skal lífríki í fjöru og á grunnsævi, einkum og sér í lagi með tilliti til fugla, sem og hafsbotninn.
Frestur til að gera athugasemdir er til og með 7. júlí 2025. Ábendingum og athugasemdum má skila með tölvupósti á netfangið nattura@nattura.is eða með pósti til Náttúruverndarstofnunar, Urriðaholtsstræti 6-8, 210 Garðabær.
Náttúruverndarstofnun vekur athygli á því að innsendar athugasemdir eru hluti af stjórnsýslumáli og kunna að verða afhentar þriðja aðila sé þess óskað í samræmi við upplýsingalög nr. 140/2012.
Frekari upplýsingar veita Ingibjörg M. Bjarnadóttir (ingibjorg.m.bjarnadottir@nattura.is) og René Biasone (rene.biasone@nattura.is) með tölvupósti eða í síma 556-6800.