Til baka

8 september 2025

 Smölun á Friðlandi að Fjallabaki 13. September

Vegna smölunar á Friðlandi að Fjallabaki laugardaginn 13. september vill Náttúruverndarstofnun koma eftirfarandi tilmælum á framfæri til fólks sem hyggur á ferðalag um friðlandið.

Á meðan smalað er austan við Bláhnúk er fólk vinsamlegast beðið um að vera ekki á ferðinni á því svæði af tillitssemi við smala og búfénað. Um er að ræða gönguleiðir um Skalla, að Grænahrygg og í Hattver um Halldórsgil og Jökulgil.

Nánari upplýsingar veita landverðir í síma 822-4083 eða gegnum netfangið fjallabak.ranger@nattura.is