Til baka

30 apríl 2025

Skemmtileg fjöruferð í Gróttu

Laugardaginn 12. apríl buðu Náttúruminjasafn Íslands og Náttúruverndarstofnun uppá fjöruferð í friðlandinu við Gróttu. Fjöruferðin var hluti af dagskrá Barnamenningarhátíðar og starfsfólk stofnananna tók vel á móti gestum ásamt Jóhanni Óla, fuglaljósmyndara.

Í fjörunni fengu þátttakendur tækifæri til að skoða fjölbreytt lífríki fjörunnar og spreyta sig á að greina lífverur, eins og lindýr, krabbadýr, þang og þara, auk þess að fræðast um mikilvægi náttúruverndar.

 

Rétt er að minna á að frá og með 1. maí er fjaran við Gróttu lokuð almenningi vegna fuglaverndar yfir varptímann. Gestir eru því hvattir til að sýna svæðinu tillitssemi og virða lokanir í þágu fuglalífsins.

Image