Til baka
21 maí 2025
Prentun plastveiðikorta hætt

Eins og kynnt var á síðasta ári þá hefur Náttúruverndarstofnun ákveðið að hætta útgáfu plastkorta fyrir veiðikortakerfið og einungis bjóða upp á stafræn kort frá og með 1. janúar 2026.
Með þessu skrefi er stuðlað að hraðari og betri þjónustu, einfaldara aðgengi og minni umhverfisáhrifum. Notendur geta nú vistað veiðikortin sín beint í síma eða rafrænt veski og þannig haft þau alltaf við höndina.
Við þökkum veiðimönnum fyrir jákvæð viðbrögð og stuðning við þróun þjónustunnar í takt við nýja tíma.