Til baka

7 maí 2025

Opnunarhátíð á Gíg - gestastofu

Miðvikudaginn 30. apríl síðastliðinn var mikil gleði á Gíg þegar ný sýning og gestastofa voru formlega opnuð. 

Undirbúningur að hönnun sýningarinnar hefur staðið yfir undanfarin þrjú ár og starfsfólk Náttúruverndarstofnunar unnið hörðum höndum að gerð hennar. Íslenska hönnunarstofan Sp(r)int studio ásamt bresku hönnunarstofunni Nissen Richards Studio unnu hönnunarsamkeppnina og sáu því um hönnun sýningarinnar. Fjölmargir komu að gerð sýningarinnar á einn eða annan hátt og viljum við þakka þeim fyrir ómetanlega aðstoð. Sýnining ber nafnið Undraveröld náttúrunnar og viðfangsefni hennar er víðfemt; lífríki, jarðfræði, saga og menning Mývatnssveitar sem og hálendisins norðan Vatnajökuls. 

Image

Til að fagna opnun sýningarinnar var efnt til samkomu á Gíg með tilheyrandi hátíðardagskrá, en gestir hlýddu á margvísleg erindi í bland við lifandi tónlist. 

Nokkur ávörp voru á dagskrá. Fyrst frá Ingibjörgu Halldórsdóttur, fyrir hönd umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins og  þar á eftir frá Sigrúnu Ágústsdóttur, forstjóra Náttúruverndarstofnunar. Gerður Sigtryggsdóttir, oddviti Þingeyjarsveitar og formaður svæðisráðs norðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs, tók næst til máls og var Yngvi Ragnar  með ávarp heimamanns, en fjallaði hann um tengingu sína við húsið í áranna rás. Í síðasta ávarpinu var verkefnið kynnt af Karli Kvaran eiganda Sp(r)int Studio, Önnu Þorsteinsdóttur þjóðgarðsverði og Dagbjörtu Jónsdóttur svæðissérfræðingi.  

Að loknum ávörpunum var sýningin opnuð formlega þegar Jón Árni Sigfússon, elsti núlifandi Mývetningurinn, klippti á borðann. Jónas Þór og Arnþór sáu um ljúfa tóna fyrir og eftir formlega dagskrá sem og tónlistaratriði. 

Image

Þá fóru Helga Hvanndal, aðstoðarþjóðgarðsvörður, og Hulda María, sérfræðingur, með hátíðarstjórn. 

Að hætti Mývetninga var fjöldasöngur í upphafi og lok dagskrár undir tryggri stjórn Þorláks Páls.  

Að dagskrá lokinni var boðið upp á léttar veitingar og gestum boðið að skoða sig um á sýningunni. 

Image

Við vijlum þakka öllum þeim sem sáu sér fært að koma og fagna með okkur þessum stóra áfanga. Jafnframt bjóðum við öll velkomin í heimsókn til okkar á Gíg þar sem landverðir Náttúruverndarstofnunar taka vel á móti ykkur.

Image