Til baka
13 júní 2025
Norræn heimsminjaráðstefna í Danmörku í september

Samtök norrænna heimsminjastaða (e. Nordic World Heritage Association) standa fyrir sinni árlegu ráðstefnu dagana 8.-11. september. Ráðstefnan fer fram í Danmörku, þar sem meðal annars gefst tækifæri á að skoða heimsminjastaðina Stevns Klint og Trelleborg. Öll þau sem hafa áhuga á heimsminjum, tengslum þeirra við nærsamfélögin og alþjóðlega samvinnu eru velkomin á ráðstefnuna, en þema ráðstefnunnar í ár er einmitt „aukið virði – samvinna um heimsminjar (e. raising values – working together on World Heritage).
Náttúruverndarstofnun hvetur samstarfsaðila og önnur áhugasöm til þátttöku í ráðstefnunni.
Umsóknarfrestur er til 18.júní – skráning fer fram hér.