Til baka
23 maí 2025
Hoffellslambatungur - Stjórnunar- og verndaráætlun

Til umsagnar er breytingatilaga að stjórnunar- og verndunaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs er varðar Hoffellslambatungur. Umsagnarfrestur er til og með 12. ágúst 2025.
Þjóðlendan Hoffellslambatungur í Sveitarfélaginu Hornafirði var friðlýst þegar hún varð hluti af Vatnajökulsþjóðgarði 16. júlí 2021 skv. ákvörðun umhverfis- og auðlindaráðherra og breytingu á reglugerð 300/2020. Þjóðlendan er óbyggt fjalllendi upp við jaðar Vatnajökuls, nánar tiltekið á milli annars vegar Lambatungnajökuls og hinsvegar Austurtungnajökuls og Lambatungnaár. Svæðið er hluti af stærri landslagsheild sem tekur til Hoffellsfjalla, austasta hluta Vatnajökuls og Lónsöræfa, þar sem ósnortin víðátta og mikilfenglegt fjalllendi og jöklar, sundurskorið af ísaldarjöklum, er megineinkenni. Á svæðinu er einnig eini þekkti fundarstaður jarðbiks á Íslandi. Hefðbundin landnýting er heimil eins og fram kemur í reglugerð 300/2000, viðauka III.
Svæðisráð suðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs leggur fram breytingatillögu á stjórnunar- og verndaráætlun þjóðgarðsins í framhaldi af stækkun hans um Hoffellslambatungur í Sveitarfélaginu Hornafirði, með breytingu 840/2021, 16. júlí 2021, á reglugerð nr. 300, 4. apríl 2020, síðast breytt 8. október 2021, ásamt forsendum tillögunnar.
Stjórnunar‐ og verndaráætlun fyrir Vatnajökulsþjóðgarð er sett fram í samræmi við ákvæði laga um Vatnajökulsþjóðgarð nr. 60/2007 og reglugerð um Vatnajökulsþjóðgarð nr. 300/2020. Við stækkun þjóðgarðs er heimilt að gera viðauka við stjórnunar og verndaráætlun, sbr. 12. gr. laga um Vatnajökulsþjóðgarð sem segir: „Við stækkun þjóðgarðsins er heimilt að gera viðauka við stjórnunar- og verndaráætlun með lýsingu á mörkum og náttúru og ákvæðum um stjórnun og vernd hins nýja svæðis, án þess að öll áætlunin sé tekin til endurskoðunar. Um málsmeðferð fer samkvæmt ákvæðum 4.–6. mgr. Sameina skal viðaukann við stjórnunar- og verndaráætlun við næstu endurskoðun hennar.“
Svæðisráð suðursvæðis samþykkti breytingartillögu að stjórnunar- og verndunaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs er varðar Hoffellslambatungur á 141. fundi sínum þann 9.5.2025. Svæðisstjórn Vatnajökulsþjóðgarðs samþykkti tillöguna á fundi sínum þann 21.5.2025.
Breytingartillagan, sem nálgast má hér, liggur nú frammi til umsagnar til og með 12.8.2025.
Óskað er eftir athugasemdum frá almenningi við drög að áætluninni. Nánari upplýsingar veitir Helga Árnadóttir, verkefnastjóri (helga.arnadottir@nattura.is).
Umsögnum skal skila á netfangið nattura@nattura.is