Til baka
10 júní 2025
Fræðsludagskrá um allt land í sumar

Viltu fræðast um hörfandi jökla? villt blóm, víðerni og fossa?
Tengjast friðlýstum svæðum, fá innblástur og ferskt loft?
Þá er fræðsludagskrá Náttúrurverndarstofnunar með eitthvað fyrir þig í sumar.
Landverðir á friðlýstum svæðum bjóða gestum upp á fræðslugöngur, barnastundir og viðburði. Fjölbreytt dagskrá er í boði fyrir öll sem vilja kynnast betur náttúru landsins. Í gestastofum þjóðgarðanna og víðar er einnig hægt að fá upplýsingar og skoða sýningar um sérkenni hvers svæðis.
Skoða fræðsludagskrá Náttúruverndarstofnunar
Dagskráin er gjaldfrjáls og öll eru velkomin - Hlökkum til að sjá ykkur á friðlýstum svæðum!