Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Valmynd

Smölun í Frið­landi að Fjalla­baki 12. sept­em­ber

9.september 2026

Vegna smölunar í Friðlandi að Fjallabaki laugardaginn 12. september vill Náttúruverndarstofnun koma eftirfarandi tilmælum á framfæri til fólks og ferðaþjónustuaðila sem hyggja á ferðalag í friðlandið. Ferðafólk er beðið um að ganga ekki gönguleiðirnar að Grænahrygg um Halldórsgil eða af Skallahring,  og vera ekki á ferð í Jökulgili eða Hattveri. Í Friðlandi að Fjallabaki eru margar aðrar gönguleiðir í boði.

Hér má nálgast kort og aðrar upplýsingar um friðlandið

Nánari upplýsingar veita landverðir í síma 822-4083 eða í gegnum netfangið fjallabak@nattura.is