Málþing um stöðu og nýtingu sjófugla á Íslandi verður haldið mánudaginn 12. október 2026 kl. 9:00–16:30 í húsnæði Hafrannsóknastofnunar. Málþinginu verður einnig streymt á netinu og tengill mun birtast í viðburðinum á Facebook, sem er aðgengilegur hér að neðan, fyrir upphaf málþingsins.
Nýting sjófugla á sér djúpar sögulegar og menningarlegar rætur á Íslandi og gegndi lengi mikilvægu hlutverki í fæðuöflun og lífsafkomu fólks. Hún sætir þó vaxandi vistfræði- og siðferðilegrar gagnrýni þar sem sjófuglastofnar fara margir minnkandi og umhverfisaðstæður í Norður-Atlantshafi breytast hratt.
Á þessu málþingi koma saman stjórnvöld, vísindamenn og fulltrúar hagsmunaaðila (þ.á.m. veiðimanna, landeigenda, náttúruverndarsamtaka, ferðaþjónustunnar o.fl.) til að fjalla um stöðu, sjálfbærni og nýtingu sjófuglastofna á Íslandi í ört breytilegu vistkerfi. Dagskrána má sjá hér neðst í fréttinni.
Takmarkað pláss er á viðburðinn en áhugasamir geta skráð sig hér (ath. að það þarf ekki að skrá sig fyrir streymið): https://forms.gle/qUHq1cGp2dtvrSceA
Náttúruverndarstofnun hefur haldið utan um skipulagningu viðburðarins með aðstoð Dr. Fred Johnsons, Hafrannsóknastofnunar, Náttúrufræðistofnunar og Náttúrustofa Suðurlands og Norðausturlands ásamt ráðleggingum frá þeim hagsmunaaðilum sem munu taka til máls.

