Beint í efni
  • Þjónustugátt
  • Kortasjá
  • Leit
  • Valmynd

Lofts­lags­breyt­ingar

Losun gróðurhúsalofttegunda af mannavöldum veldur loftslagsbreytingum og afleiðingar þessara breytinga á jörðinni eru meðal annars þær að jöklar bráðna, yfirborð sjávar hækkar, vistkerfi raskast og öfgar í veðurfari aukast

Losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda af manna­völd­um veldur lofts­lags­breyt­ing­um

Hve mikil hnattræn hlýnun af mannavöldum verður, ræðst af þróun í útstreymi gróðurhúsalofttegunda. IPCC spáir hækkun á hitastigi á bilinu 0,3-4,8°C næstu hundrað árin. Talið er að hlýnað hafi um 0,72°C síðustu hundrað árin (1906-2005) og svo virðist sem hraði hlýnunarinnar hafi aukist á síðustu 20 árum.