Friðlýstar tegundir og náttúrufyrirbæri
Í 61. grein náttúruverndarlaga er fjallað um sérstaka vernd tiltekinna vistkerfa og jarðminja. Náttúruverndarstofnun sér um vernd þessara tegunda og fyrirbæra á friðlýstum svæðum.
Framandi lífverur
Framandi lífverur í náttúru Íslands geta haft áhrif á og ógnað líffræðilegri fjölbreytni í nýjum heimkynnum sínum, sérstaklega ef um er að ræða ágengar framandi lífverur. Auk þess sem framandi lífverur geta haft áhrif á líffræðilega fjölbreytni geta sumar þeirra valdið verulegu tjóni, umhverfislega, efnahagslega og heilsufarslega.
