Ferill friðlýsinga
Þegar tillaga um friðlýsingu svæðis berst er hún tekin til skoðunar hjá Náttúruverndarstofnun og ráðuneytinu sem fer með umhverfismál. Öll hafa tækifæri til að leggja til svæði sem þau telja verðugt friðlýsingar, hvort sem það er vegna náttúrufegurðar, lífríkis eða menningarlegra verðmæta. Einnig er unnið markvisst eftir stefnumótun Alþingis um náttúruverndaráætlanir, náttúruminjaskrá og rammaáætlun, þannig að tryggt sé að verndun náttúrunnar sé skipulögð og í sátt við samfélagið.


Friðlýsingar í vinnslu
Hér má sjá þau svæði sem eru á mismunandi stigum friðlýsingaferlisins og eru nú í vinnslu hjá Náttúruverndarstofnun. Þetta eru svæði sem hafa vakið athygli fyrir náttúrugildi sín og eru til skoðunar með það að markmiði að tryggja vernd þeirra til framtíðar.
Friðlýsingar í kynningu
Allar auglýsingar um áform um friðlýsingu svæða eru kynntar í fjórar vikur samkvæmt náttúruverndarlögum og tillögur að friðlýsingum eru kynntar í sex vikur.
Athugasemdum við kynningarnar er hægt að skila með tölvupósti á netfangið nattura@nattura.is og með bréfpósti til Náttúruverndarstofnunar, Urriðaholtsstræti 6-8, 210 Garðabær.


-1963x1590.jpg&w=3840&q=80)
-1200x800.jpg&w=3840&q=80)
