Ástandsmat áfangastaða innan friðlýstra svæða
Fjölgun gesta á friðlýst svæði á Íslandi hefur haldist í hendur við þá fjölgun ferðamanna sem sækja Ísland heim. Til þess að fylgjast með ástandi áfangastaðanna og forgangsraða aðgerðum er notað verkfæri sem gerir okkur kleift að fylgjast með breytingum á ástandi hvers áfangastaðar fyrir sig og meta hvaða áfangastaðir eru í hættu á að skemmast komi ekki til framkvæmda eða skipulagsbreytinga.


Áfangastaðir í hættur
Margir fjölsóttir áfangastaðir hafa mælst í hættu í árlegu ástandsmati. Þessir áfangastaðir eru undir sérstöku eftirliti Náttúruverndarstofnunar. Greining fer fram um hvaða aðgerða er þörf til þess að bæta ástand áfangastaðarins en breytingar á fjölda gesta hefur einnig mikil áhrif á ástand og álag á áfangastöðum.
