Fréttir

Þarftu raunverulega nýja tölvu?

Þegar gamla tölvan er orðin hæg og þreytt er oft nóg að auka RAM eða vinnsluminni tölvunnar (RAM = Random Access Memory). Einnig er hægt að skipta um skjákort með litlum tilkostnaði. Örgjörvinn getur einnig verið orðinn hægur og er hægt að skipta um örgjörva og viftu án mikilla erfiðleika á mörgum borðtölvum. Ef harði diskurinn er orðinn fullur, þá er hægt að hafa tvo harða diska á sömu tölvunni, skipta úr þeim sem fyrir er með stærri eða nota lausan flakkara.

Stundum er líka hægt að fækka viðbótum, slökkva á sjónrænu sjónarpili (MS Vista), hreinsa til á harða diskinum og endurraða gögnum á hann (Defragment). Eins má setja gamlan póst í geymslu (Archive) og  koma eldri gögnum í varðveislu á lausum diskum eða brenna á geisladiska. Rétt er að hafa í huga að allir harðir diskar gefa sig einhverntíma og þá er gott að eiga afrit af mikilvægum gögnum.

Ef ákveðið er að kaupa nýja tölvu, þá er margt sem þú getur gert til þess að draga úr umhverfisáhrifunum. Þú getur notað gömlu músina og gömlu hátalarana og gamla skjáinn áfram þótt þú kaupir nýja tölvu. Forðastu að kaupa pakka þar sem allt er innifalið. Það er líka dýrara. Kannski getur þú keypt notaða tölvu. Gættu þó að því að hún sé ekki þýfi eða léleg eftirlíking. Leitastu við að kaupa tölvu sem er umhverfismerkt eða merkt með TCO 03. TCO merking nær eins og Svansmerking yfir vinnufræðilega þætti og vinnuumhverfi (Ergonomi).

Næstum allar tölvur eru með Energy Star orkumerkinu. Að velja tölvu sem er ekki með Energy Star er hrein orkusóun. Tölvur með umhverfismerkinu Svaninum og Blóminu eru einnig fáanlegar. Fargið tölvum sem rafmagnsúrgangi. Það er margt verðmætt í notuðum tölvum s.s. silfur, kopar og gull, auk þess sem mikið af innihaldi þeirra eru hreinlega skaðleg umhverfinu. Sjá myndband um hvernig tövur eru endurunnar rata rétt leið til endurvinnslu.

Sjá meira um tölvur og umhvefið í skrifstofunni í Húsinu.





Einkunn

Deildu með vinum
Flokkar:
0 orð í belg

Leggðu orð í belg

Nafn:

Orð í belg:


Vinsamlega reiknið dæmið hér að ofan og setjið niðurstöðuna í reitinn.
Gert til að tryggja mannlegan uppruna orðanna.

Öllum er frjálst að skrifa undir nafni eða dulnefni að eigin ósk. Hugmyndin er að þetta sé vettvangur jákvæðrar og málefnalegrar umræðu um dægurmál, vörur, þjónustu og leiðir til að skapa betra umhverfi okkur öllum til handa. Ritstjórn Náttúrunnar áskilur sér allan rétt til að fjarlægja óviðurkvæmileg orð í belg að hluta eða öllu leyti. IP-tölum höfunda er haldið til haga.

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Tengt lesefni:

Skrifstofan: Raftæki [29]

Endurvinnsla : Rafeindatæki [36]

Tækni: Tölvur [14]

Nýleg orð í belg

Eldhúsið - Hreinlætisvörur
Sæl, með sítrónusafa!
Guðrún Tryggvadóttir 17. 05. 2012 00:29:
Eldhúsið - Hreinlætisvörur
Hvernig fæ ég glerglös og aðrar glervörur (t.d. kristal) til að verða glansandi (með náttúrulegum ...
AP 16. 05. 2012 23:42:
Gleymdu klórnum og öðrum ónáttúrulegum hreinsiefnum!
Bórax hefur fengist í Handverkshúsinu í Bolholti í Reykjavík (notað til að hreinsa silfur og ...
Auður Páls 16. 05. 2012 23:39:
Græðgin í auðlindir landsins
Ein stór spurning varðandi leyfisveitingu UST á útiræktun (og almenna ræktun, innanhús líka þvæi ekki ...
Dominique 13. 05. 2012 12:41:
Ráðstefna um erfðabreytta ræktun, sleppingu og dreifingu
Spurning hvort fólk sem hefur kynnt sér neikvæðu hlíðar af erfðatækni ættu að fá að ...
Morten Lange 12. 05. 2012 02:03:
Seljum Ísland hvað sem það kostar
Einar Benediktsson um Kínamál: http://visir.is/kinamal-/article/2012705099999
Guðrún Tryggvadóttir 9. 05. 2012 10:04:
Fjölmennt á málþingi Landverndar og Eldvatna - samtaka um náttúruvernd í Skaftárhreppi
Við munum þurfa að berjast og berjast. Griðungar stóriðju munu heimta orku án afláts og ...
Árni Gunnarsson 6. 05. 2012 13:18:
Landneminn alaskalúpína
Sæl Gígja. Ef settar eru niður nægilega háar trjáplöntur í lúpínubreiðurnar,þá vaxa þær vel og ...
Eyjólfur Guðmundsson 2. 05. 2012 09:35:
Samtök áhugafólks um umhverfi og vellíðan í burðarliðnum
Nú veit ég ekki. Reyndu t.d. Félag hjúkrunarfræðinga!
Guðrún Tryggvadóttir 1. 05. 2012 12:08:

Fréttir frá: