Fréttir

Í þágu náttúru og komandi kynslóða

Ár er liðið frá því ég tók við embætti umhverfisráðherra á miklum umrótstímum. Á fyrstu mánuðum í embætti var ég oft spurð hvort umhverfis- og náttúruverndarmál væru ekki lúxusmál sem þjóðin hefði ekki efni á að sinna á samdráttartímum. Ég fæ ekki slíka spurningu lengur enda flestir sem gera sér orðið grein fyrir mikilvægi þess að hagsmunum náttúru og umhverfis sé haldið á lofti.

Sagan hefur kennt okkur að það er sennilega aldrei mikilvægara en á samdráttartímum að huga vel að umhverfis- og náttúruverndarsjónarmiðum og standa vörð um þær auðlindir sem við höfum fengið að láni hjá komandi kynslóðum. Umræðan um aukinn hagvöxt snýr nær undantekningarlaust að náttúruauðlindum eins og vatni, fiski, orku, loftgæðum o.s.frv. Nýting þessara auðlinda verður að vera á forsendum sjálfbærrar þróunar þar sem samfélagsleg, umhverfisleg og efnahagsleg áhrif eru metin að jöfnu. Við þekkjum afleiðinguna af því að horfa eingöngu á efnahagslegu áhrifin af nýtingu auðlinda og þeirri leið sem farin hefur verið til að halda uppi hagvexti. Sú aðferðafræði hefur ekki verið farsæl fyrir þjóðina og hún hefur sýnt okkur að við þurfum fleiri mælikvarða en hagvöxt til að mæla heilbrigði samfélags.

Á þessu fyrsta starfsári mínu sem umhverfisráðherra hef ég lagt áherslu á að staða náttúruverndar innan stjórnarráðsins verði styrkt. Hafin eru fjölmörg verkefni til að styrkja stöðu náttúrunnar og ber þar hæst víðtæk endurskoðun á lagaumhverfi náttúruverndar. Þá hef ég einnig lagt sérstaka áherslu á líffræðilega fjölbreytni, endurheimt votlendis, framkvæmd náttúruverndaráætlunar, loftslagsmarkmið og að flýta innleiðingu Árósasamningsins. Þetta eru aðeins nokkur dæmi um þau mörgu verkefni sem nú er unnið að í umhverfisráðuneytinu.

Það er eðli embættis umhverfisráðherra að tala máli náttúrunnar og tryggja að hún fái notið vafans við ákvarðanatöku. Ég hef forðast að láta undan þrýstingi hagsmunaaðila, staldrað við, spurt spurninga og aflað frekari gagna með það að leiðarljósi að verja hagsmuni heildarinnar, komandi kynslóða og náttúrunnar. Verkefni í þágu umhverfis- og náttúruverndar eru málefni hvers dags, unnin í þágu framtíðar og komandi kynslóða. Möguleikar barnanna okkar og barnabarna velta á því að málaflokknum sé sinnt af kostgæfni og alvöru.





Einkunn

Deildu með vinum
Flokkar:

Orð í belg

Tómas J. Knútsson - þriðjudagur 11. maí, 2010 klukkan 08:12:44

Þrátt fyrir frábæran árangur Bláa hersins undir minni stjórn frá upphafi og verkefni unnin til verndar umhverfi Íslands fær Blái herinn engan stuðning frá Umhverfisráðuneytinu sem kalla mætti,heilar 200 þúsund krónur.Ef Umhverfisráðherra vill almennilegan kraft í verndun náttúru Íslands fyrir komandi kynslóðir á hún að styðja við bakið á þeim sem elska,virða,berjast,fræða,hreinsa,efla,hvetja og vinna að þeim málaflokki eins og við hjá Bláa hernum.Ímynd okkar gæti tekið stórt stökk upp á við ef það yrði aðeins tekin ein ákvörðun, 100 % sjálfbært samfélag. Hver getur tekið þessa ákvörðun! Háttvirtur Umhverfisráðherra.

Eigið góðan dag,

virðingarfyllst

Tómas J. Knútsson formaður Bláa hersins

1 orð í belg

Leggðu orð í belg

Nafn:

Orð í belg:


Vinsamlega reiknið dæmið hér að ofan og setjið niðurstöðuna í reitinn.
Gert til að tryggja mannlegan uppruna orðanna.

Öllum er frjálst að skrifa undir nafni eða dulnefni að eigin ósk. Hugmyndin er að þetta sé vettvangur jákvæðrar og málefnalegrar umræðu um dægurmál, vörur, þjónustu og leiðir til að skapa betra umhverfi okkur öllum til handa. Ritstjórn Náttúrunnar áskilur sér allan rétt til að fjarlægja óviðurkvæmileg orð í belg að hluta eða öllu leyti. IP-tölum höfunda er haldið til haga.

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Tengt lesefni:

Samfélagið: Umhverfismál [1009]

Nýleg orð í belg

Eldhúsið - Hreinlætisvörur
Sæl, með sítrónusafa!
Guðrún Tryggvadóttir 17. 05. 2012 00:29:
Eldhúsið - Hreinlætisvörur
Hvernig fæ ég glerglös og aðrar glervörur (t.d. kristal) til að verða glansandi (með náttúrulegum ...
AP 16. 05. 2012 23:42:
Gleymdu klórnum og öðrum ónáttúrulegum hreinsiefnum!
Bórax hefur fengist í Handverkshúsinu í Bolholti í Reykjavík (notað til að hreinsa silfur og ...
Auður Páls 16. 05. 2012 23:39:
Græðgin í auðlindir landsins
Ein stór spurning varðandi leyfisveitingu UST á útiræktun (og almenna ræktun, innanhús líka þvæi ekki ...
Dominique 13. 05. 2012 12:41:
Ráðstefna um erfðabreytta ræktun, sleppingu og dreifingu
Spurning hvort fólk sem hefur kynnt sér neikvæðu hlíðar af erfðatækni ættu að fá að ...
Morten Lange 12. 05. 2012 02:03:
Seljum Ísland hvað sem það kostar
Einar Benediktsson um Kínamál: http://visir.is/kinamal-/article/2012705099999
Guðrún Tryggvadóttir 9. 05. 2012 10:04:
Fjölmennt á málþingi Landverndar og Eldvatna - samtaka um náttúruvernd í Skaftárhreppi
Við munum þurfa að berjast og berjast. Griðungar stóriðju munu heimta orku án afláts og ...
Árni Gunnarsson 6. 05. 2012 13:18:
Landneminn alaskalúpína
Sæl Gígja. Ef settar eru niður nægilega háar trjáplöntur í lúpínubreiðurnar,þá vaxa þær vel og ...
Eyjólfur Guðmundsson 2. 05. 2012 09:35:
Samtök áhugafólks um umhverfi og vellíðan í burðarliðnum
Nú veit ég ekki. Reyndu t.d. Félag hjúkrunarfræðinga!
Guðrún Tryggvadóttir 1. 05. 2012 12:08:

Fréttir frá: