Fréttir

Líflegar borgir draga úr bílaumferð

„Leiðin til að skapa rými fyrir fólk í borgum er að ganga á rými bifreiða,“ sagði Jan Gehl á fyrirlestri í hádeginu á vegum Félags íslenskra landslagsarkitekta. Gehl er arkitekt og starfaði sem prófessor í Kaupmannahafnarháskóla. „Fleiri og betri vegir og bílastæði merkir aðeins meiri umferð og loftmengun.“
Fræðasvið Gehls hefur í fjóra áratugi beinst að því að skapa meira rými í borgum fyrir fólk. Hann hefur með góðum árangri unnið að því að hreinsa bifreiðar af torgum, stéttum og upplögðum göngugötum - með nýju skipulagi. Hann hefur skrifað áhrifaríkar bækur um efnið, sú þekktasta heitir Lífið á milli bygginga og sú nýjasta Nýr lífsstíll í borgum og fjallar um hvernig Kaupmannahöfn hvarf frá því að vera bílaborg til þess að vera borg útilífs og útivistar. Hlutfall þeirra sem nú hjóla til og frá vinnu í Kaupmannahöfn er nú 36%.

Gehl sagði að leiðin til að bjarga borg undan bílnum væri að greiða götu gangandi og hjólandi með áberandi og áþreifanlegum hætti. Hann stofnaði fyrirtækið Gehl Architects eftir að hann fór á eftirlaun og nú vinnur GA meðal annars fyrir borgarstjórn New York bjóða hjólreiðafólk velkomið með því að leggja 6. þúsund km af hjólareinum. „Ráðið er að bjóða hjólandi og gangandi velkomið með mannvirkjum sem ganga á hlutdeild bifreiða,“ sagði Jan Gehl.


Lifandi, aðlagandi, örugg, sjálfbær og heilsuvænleg borg er það sem allir vilja að mati Gehls. „Við þurfum að gera fólki mögulegt og freistandi að hjóla og ganga daglega eins mikið og mögulegt er. Bílnum hefur verið gefið þetta rými og við verðum að nema staðar og taka það aftur undir fólk.“

Mynd frá fyrirlestri Jan Gehls sem fram fór á Grand Hótel í Reykjavík og var mjög vel sóttur.

 

Tenglar: Gehl Architects, Bækur eftir Jan Gehls




Einkunn

Deildu með vinum
Flokkar:
0 orð í belg

Leggðu orð í belg

Nafn:

Orð í belg:


Vinsamlega reiknið dæmið hér að ofan og setjið niðurstöðuna í reitinn.
Gert til að tryggja mannlegan uppruna orðanna.

Öllum er frjálst að skrifa undir nafni eða dulnefni að eigin ósk. Hugmyndin er að þetta sé vettvangur jákvæðrar og málefnalegrar umræðu um dægurmál, vörur, þjónustu og leiðir til að skapa betra umhverfi okkur öllum til handa. Ritstjórn Náttúrunnar áskilur sér allan rétt til að fjarlægja óviðurkvæmileg orð í belg að hluta eða öllu leyti. IP-tölum höfunda er haldið til haga.

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Tengt lesefni:

Samfélagið: Umhverfismál [1009]

Samfélagið: Viðburðir [184]

Samgöngur: Hjólreiðar [58]

Samgöngur: Vistvæn ökutæki [85]

Nýleg orð í belg

Eldhúsið - Hreinlætisvörur
Sæl, með sítrónusafa!
Guðrún Tryggvadóttir 17. 05. 2012 00:29:
Eldhúsið - Hreinlætisvörur
Hvernig fæ ég glerglös og aðrar glervörur (t.d. kristal) til að verða glansandi (með náttúrulegum ...
AP 16. 05. 2012 23:42:
Gleymdu klórnum og öðrum ónáttúrulegum hreinsiefnum!
Bórax hefur fengist í Handverkshúsinu í Bolholti í Reykjavík (notað til að hreinsa silfur og ...
Auður Páls 16. 05. 2012 23:39:
Græðgin í auðlindir landsins
Ein stór spurning varðandi leyfisveitingu UST á útiræktun (og almenna ræktun, innanhús líka þvæi ekki ...
Dominique 13. 05. 2012 12:41:
Ráðstefna um erfðabreytta ræktun, sleppingu og dreifingu
Spurning hvort fólk sem hefur kynnt sér neikvæðu hlíðar af erfðatækni ættu að fá að ...
Morten Lange 12. 05. 2012 02:03:
Seljum Ísland hvað sem það kostar
Einar Benediktsson um Kínamál: http://visir.is/kinamal-/article/2012705099999
Guðrún Tryggvadóttir 9. 05. 2012 10:04:
Fjölmennt á málþingi Landverndar og Eldvatna - samtaka um náttúruvernd í Skaftárhreppi
Við munum þurfa að berjast og berjast. Griðungar stóriðju munu heimta orku án afláts og ...
Árni Gunnarsson 6. 05. 2012 13:18:
Landneminn alaskalúpína
Sæl Gígja. Ef settar eru niður nægilega háar trjáplöntur í lúpínubreiðurnar,þá vaxa þær vel og ...
Eyjólfur Guðmundsson 2. 05. 2012 09:35:
Samtök áhugafólks um umhverfi og vellíðan í burðarliðnum
Nú veit ég ekki. Reyndu t.d. Félag hjúkrunarfræðinga!
Guðrún Tryggvadóttir 1. 05. 2012 12:08:

Fréttir frá: