Fréttir
Plastpökkuð viðskipti
Viðskiptablað Morgunblaðsins kemur húðlitað í plastumbúðum inn um lúguna. Það getur ekki talist sérlega umhverfisvænt og er í raun alger tímaskekkja. Plastið á hugsanlega að gefa blaðinu meira gildi og undirstrika mikilvægi blaðs um viðskipti, kannski umfram almenna blaðið. Þó virkar Viðskiptablaðið ósköp vesælt og viðkvæmt húðlitað í plastinu.
Nú þegar að aðrar þjóðir fara í herferðir gegn plastpokum heldur Morgunblaðið innpökkuninni til streitu. Morgunblaðið sem hefur grætt hvað mest á Kolviðarauglýsingunum og grænu herferðum bílaframleiðanda nú undanfarið, herferða sem nýta sér það að kolefnisjafna til að sýna sig sem „græn fyrirtæki“ í augum illa upplýstra neytenda. Slíkt er verið að banna með lögum í nágrannalöndunum en við erum í þessu eins og því miður svo mörgu öðru dolítið á eftir tímanum.
Hvað með eigin umhverfisímynd Morgunblaðsins? Ég veit að á mörgum sviðum stendur blaðið sig mjög vel, er t.a.m. með Svansvottun á prentsmiðjunni og ef notaður yrði einnig umhverfisvænn pappír væru öll prentun Morgunblaðsins vottuð með Svaninum, umhverfismerki Norrænu ráðherranefndarinnar.
En aftur til Viðskiptablaðsins. Leiðari blaðsins í dag skýrir nokkuð berlega afstöðu blaðsins til umhverfismála. Leiðarahöfundur lætur í ljós mikla tortryggnu gagnvart yfirlýsingum ný skipaðs umhverfisráðherra Þórunnar Sveinbjarnardóttur. En í viðtali í Viðskiptablaðinu í gær boðar Þórunn breytta tíma sem m.a. eiga að felast í nánu samstarfi við iðnaðarráðherra og að hún vilji efla sitt ráðuneyti.
Leiðarahöfundur lýsir áhyggjum sínum af vilja umhverfisráðherra til að efla ráðuneytið og vinna með iðnaðarráðuneytinu. Hann segir m.a.:
„Ef skilja má ráðherra rétt þá virðist hún tala fyrir því að nýting auðlinda landsins falli undir umhverfisráðuneytið. Er það skynsamleg ráðstöfun? Munu þeir sem fara með málefni atvinnulífsins í ríkisstjórn sætta sig við að þurfa að eiga allt sitt undir umhverfisráðuneytinu? Er það í anda þeirra hugmyndar að setja upp og efla það ráðuneyti sem fer með málefni atvinnulífsins, væntanleg til að gera hlutina skilvirkari og markvissari. Allt með það að markmið að efla samkeppnisstöðu Íslands í viðskipta-og efnahagsmálum. Sama má segja um hugmyndir ráðherrans um að taka til sín útgáfu rannsóknarleyfa“.
Hann heldur áfram... „Það dylst ekki þegar orð ráðherrans eru skoðuð að það hyggst hún gera til að geta hægt á framkvæmdum þegar svo ber undir. Á meðan sumir hafa þá skoðun og sannfæringu að minnka þurfi umsvif og ítök ríkisvaldsins þegar kemur að atvinnulífinu þá er heldur óþægilegt að heyra slíkar skoðanir“.
Ekki furða að Viðsktiptablaðið komi pakkað í plast inn um lúguna, árið 2007.
Myndin er af Þórunni Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.
14. jún. 2007 21:19
Uppruni:
til baka
Sjá tengt lesefni og tilvísanir í Grænar síður hér til hægri.
- Samfélagið
- - - -
Tengt lesefni:
Samfélagið: Umhverfismál [1009]
: Stjórnmál [100]
Grænar síður:
Umhverfismál [25]

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Viðburðadagatal
| sun | mán | þri | mið | fim | fös | lau | |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 29 | 30 | 01 | 02 | 03 | 04 | 05 | maí |
| 06 | 07 | 08 | 09 | 10 | 11 | 12 | maí |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | maí |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | maí |
| 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 01 | 02 | jún |
| 03 | 04 | 05 | 06 | 07 | 08 | 09 | jún |
| 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | jún |
| 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | jún |
| 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | jún |
mánudagur 30. apríl
- 17:15
Hvenær gýs Hekla?
Sjá grein: Hvenær gýs Hekla? Innviðir eldfjalls og jarðskorpuhreyfingar - 23:59
Frestur til að sækja um styrk úr Umhverfissjóði Landsbankans rennur út
Sjá grein: Umhverfisstyrkir Landsbankans auglýstir í annað sinn
miðvikudagur 02. maí
- 12:10
Má bjóða þér vatn?
Sjá grein: Má bjóða þér vatn?
sunnudagur 06. maí
- 11:00
Sunnudagsganga um Sveifluháls
Sjá grein: Náttúruverndarfélag Suðvesturlands býður til sunnudagsgöngu á Sveifluháls - 11:00
Fuglablik í Grasagarðinum í Reykjavík
Sjá grein: Fuglablik í Grasagarðinum - ljósmyndasýning og fuglaganga
mánudagur 07. maí
- 20:00
Queen of the Sun sýnd í Norræna húsinu
Sjá grein: Samtök lífrænna neytenda bjóða á Drottningu sólarinnar
föstudagur 11. maí
- 13:00
Málþing og raflínur og strengi
Sjá grein: Málþing um raflínur og strengi - 13:00
Samráðsþing MAST - Áhættugreining og eftirlit
Sjá grein: Samráðsþing MAST - Áhættugreining og eftirlit
laugardagur 12. maí
- 10:00
Aðalfundur Landverndar
Sjá grein: Aðalfundur Landverndar
þriðjudagur 15. maí
- 13:00
Erfðabreytt ræktun, slepping og dreifing
Sjá grein: Ráðstefna um erfðabreytta ræktun, sleppingu og dreifingu - 20:00
Náttúran, auðlindirnar og nýja stjórnarskráin
Sjá grein: Borgarafundur um náttúruvernd og auðlindanýtingu í stjórnarskrá
mánudagur 21. maí
- 13:00
Málþing um sjálfbæra ferðamennsku og náttúruvernd á háhitasvæðum
Sjá grein: Sjálfbær ferðamennska og náttúruvernd á háhitasvæðum
miðvikudagur 30. maí
- 13:00
Málþing um Árósarsamninginn
Sjá grein: Málþing um Árósasamninginn 30. maí
fimmtudagur 31. maí
- 09:00
Ráðstefna um útinám og náttúrleg leiksvæði
Sjá grein: Ráðstefna um útinám og náttúruleg leiksvæði
mánudagur 04. júní
- 08:30
Soils Governance and Society
Sjá grein: Alþjóðleg ráðstefna um sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda

Færð á vegum
Aðalleiðir eru nú greiðfærar að heita má um allt land. Þó eru hálkublettir á Dettifossvegi og þungfært á Mjóafjarðarheiði.Framkvæmdir
Unnið er við breytingar á Suðurlandsvegi milli Bláfjallavegar og Litlu kaffistofunnar. Akbrautin í austur verður breikkuð og lagfærð og gengið frá við Litlu kaffistofuna. Verklok eru áætluð í júlí. Vegfarendur eru beðnir að aka varlega um vinnusvæðið og virða merkingar.Hálendisvegir
Á hálendinu er allur akstur víða bannaður vegna aurbleytu og hættu á skemmdum.Þungatakmarkanir
Þungatakmarkanir eru á örfáum vegum.Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.Sjá staðsetningu hreindýra hér.
Upplýsingar birtar með fyrirvara um heimild og tæknilegt aðgengi að upplýsingum
Heimild: Vegagerðin
Nýleg orð í belg
Hvernig fæ ég glerglös og aðrar glervörur (t.d. kristal) til að verða glansandi (með náttúrulegum ...
AP 16. 05. 2012 23:42:
Bórax hefur fengist í Handverkshúsinu í Bolholti í Reykjavík (notað til að hreinsa silfur og ...
Auður Páls 16. 05. 2012 23:39:
Ein stór spurning varðandi leyfisveitingu UST á útiræktun (og almenna ræktun, innanhús líka þvæi ekki ...
Dominique 13. 05. 2012 12:41:
Spurning hvort fólk sem hefur kynnt sér neikvæðu hlíðar af erfðatækni ættu að fá að ...
Morten Lange 12. 05. 2012 02:03:
Einar Benediktsson um Kínamál: http://visir.is/kinamal-/article/2012705099999
Guðrún Tryggvadóttir 9. 05. 2012 10:04:
Við munum þurfa að berjast og berjast. Griðungar stóriðju munu heimta orku án afláts og ...
Árni Gunnarsson 6. 05. 2012 13:18:
Sæl Gígja. Ef settar eru niður nægilega háar trjáplöntur í lúpínubreiðurnar,þá vaxa þær vel og ...
Eyjólfur Guðmundsson 2. 05. 2012 09:35:
Nú veit ég ekki. Reyndu t.d. Félag hjúkrunarfræðinga!
Guðrún Tryggvadóttir 1. 05. 2012 12:08:
Fréttir frá:
Samtökum lífrænna neytenda
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Náttúrufræðistofnun
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Umhverfisráðuneytinu
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Umhverfisstofnun
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Sorpu
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Sólheimum
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Loftslag.is
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Saving Iceland
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
RSS fréttir frá Náttúran.is má nálgast á feed://natturan.is/feeds/








