Fréttir

Tvö álver í Þorlákshöfn?

Rannveig Rist forstjóri Alcan á Íslandi fundaði með forsvarsmönnum Þorlákshafnarbæjar í gær um hugsanlega niðurkomu Alcan í Þorlákshöfn. Í frétt hér á Náttúrunni frá 25. maí (sjá greinina) var sagt frá því að yfirlýsingar hefðu komið frá Jóni Hjaltalín Magnússyni forsvarsmanni Altech um að svokallaður álgarður eða áltæknigarður væri „fullfjármagnaður“. Það vekur þvi spurningar um hvort að hér sé um tvö aðskilin verkefni að ræða. Annars vegar álgarð Altech og ónefndra erlendra fjárfesta og hins vegar nýtt Alcan álver og þá hvort að á dagskrá sé að Þorlákshöfn verði höfuðþorp áliðnaðar á Íslandi þar sem nokkrir álrisar hafi í hyggju að koma sér fyrir.

Þorvarður Hjaltason framkvæmdstjóri Samtaka Sunnlenskra Sveitarfélaga var inntur eftir afstöðu sambandsins til umleitana Alcan um álver í Þorlákshöfn á RÚV í morgun þar sem Þorvarður lýsti því yfir að SASS hefði skýrt frá því í yfirlýsingu frá 23.04.2007* að sambandið væri hlynnt „nýtingu orku til orkufreks iðnaðar, í heimabyggð“. Jafnframt kom Þorvarður inn á að margt væri enn í veginum t.a.m. þyrfti að byggja nýja höfn. Landrými, gnægt vatns, þynningarsvæðið og rokið væri þó jákvæður þáttur fyrir slíkan iðnað.


Náttúran hafði samband við Þorvarð í kjölfarið og spurði hann m.a. hvort að fullfjármögnunaryfirlýsing Altechsmanna sé eitthvað sem honum sé kunnugt um en hann kvaðst ekki vita meira um málið en að þessi yfirlýsing hafi verið gefin út. Hann sagði einnig að með orkufrekum iðnaði kæmi svo margt annað til greina eins og t.d. hátækni,
gagnageymslur eða iðnaður af annarri gerð og stærðargráðu. Það væri því mistúlkun að segja að SASS berjist fyrir því að áliðnaður komi á svæðið enda sé það sveitarfélaganna sjálfra að ákveða hvaða atvinnustarfsemi fer þar fram. Hann benti einnig að enn væri margt eftir s.s. útvegun lóðar, umhverfismat, samningar við orkufyrirtæki og þvi ekkert í höfn enn."

*Á vef SASS (Sambands Sunnlenskra Sveitarfélaga) segir orðrétt í frétt frá 23.04.007:

Orkan verði nýtt á Suðurlandi

Á fundi stjórnar SASS sem haldinn var 20. mars sl. var eftirfarandi ályktun samþykkt um orkumál með einu mótatkvæði, sjá nánar í fundargerð 402. fundar:
,,Samtök sunnlenskra sveitarfélaga vekja athygli á breyttum aðstæðum sem hafa skapast í orkumálum á Íslandi vegna niðurstöðu ný afstaðinnar kosningar í Hafnarfirði sem hefur stöðvað frekari stækkunaráform Alcan í Straumsvík og þar með fyrirhugaða aukna orkusölu Landsvirkjunar til fyrirtækisins.Í ljósi þessa telja samtökin eðlilegt að raforka frá virkjunum sem kunna að verða reistar á Suðurlandi verði nýtt til orkufreks iðnaðar á Suðurlandi, en nú þegar eru uppi áform um slíka atvinnustarfsemi. Til þess liggja margvísleg rök. Langstærstur hluti þeirrar raforku sem framleidd hefur verið á Íslandi hefur komið frá virkjunum á Suðurlandi en orkan hefur hingað til verið nýtt til atvinnuuppbyggingar í öðrum landshlutum. Því er eðlilegt og rétt að grípa tækifærið sem nú gefst til að nýta orkuna í héraði. Þá benda samtökin á að með því að nýta orkuna sem næst virkjunum verða flutningslínur styttri og ódýrari. Styttri flutningslínur leiða einnig til minna orkutaps og minni sjónmengunar sem hvort tveggja er æskilegt vegna umhverfissjónarmiða.
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga leggja því mikla áherslu á að sú orka sem kann að verða virkjuð á Suðurlandi á næstu árum verði nýtt í héraði.”

Sjá nánar um stefnu SASS á vef sambandisins.

Myndin er af höfninni í Þorlákshöfn. Ljósmynd: Birgir Þórðarson.




Einkunn

Deildu með vinum
Flokkar:

Orð í belg

Einar - laugardagur 2. júní, 2007 klukkan 16:15:15

Ótrúlegt hvað virðist vera órjúfanlega tenging milli orku og áls í hugum margra. Eins og orka sé aðeins nýtt til álframleiðslu. Og orku þarf ekki endinlega að virkja þó hún sé til. Sú orka sem menn fjarviðrast sem mest útaf hefur verið óvirkjuð í árþúsundir og engu að síður hefur gráðugum mönnunum tekist að koma lífríki jarðarinn hálfa leið til anskotans á rúmri öld. Það þarf ekki allt þetta ál. Einn kerskáli í Straumsvík (af 3) dugir til að framleiða ál í allar þær flugvélar sem framleiddar eru á ári. Mest af því áli sem verið er að framleiða verður að rusli. Bjórdósum og matarbökkum sem liggja eins og hráðviði um allt eða enda á haugum sem eyðileggja iðulega gott byggingaland í nágrenni stórborga.
Sú stóriðja sem við Íslendingar bjóðum til lands okkar á að vera stórhuga og stuðla að betri heimi. Ekki verri.

Dísa - fimmtudagur 12. júlí, 2007 klukkan 16:27:36

Rio Tinto með yfirtökutilboð í Alcan!
http://www.mbl.is/mm/vidskipti/frett.html?nid=1279739

2 orð í belg

Leggðu orð í belg

Nafn:

Orð í belg:


Vinsamlega reiknið dæmið hér að ofan og setjið niðurstöðuna í reitinn.
Gert til að tryggja mannlegan uppruna orðanna.

Öllum er frjálst að skrifa undir nafni eða dulnefni að eigin ósk. Hugmyndin er að þetta sé vettvangur jákvæðrar og málefnalegrar umræðu um dægurmál, vörur, þjónustu og leiðir til að skapa betra umhverfi okkur öllum til handa. Ritstjórn Náttúrunnar áskilur sér allan rétt til að fjarlægja óviðurkvæmileg orð í belg að hluta eða öllu leyti. IP-tölum höfunda er haldið til haga.

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Tengt lesefni:

Áliðnaður: Fyrirtæki [41]

Nýleg orð í belg

Eldhúsið - Hreinlætisvörur
Sæl, með sítrónusafa!
Guðrún Tryggvadóttir 17. 05. 2012 00:29:
Eldhúsið - Hreinlætisvörur
Hvernig fæ ég glerglös og aðrar glervörur (t.d. kristal) til að verða glansandi (með náttúrulegum ...
AP 16. 05. 2012 23:42:
Gleymdu klórnum og öðrum ónáttúrulegum hreinsiefnum!
Bórax hefur fengist í Handverkshúsinu í Bolholti í Reykjavík (notað til að hreinsa silfur og ...
Auður Páls 16. 05. 2012 23:39:
Græðgin í auðlindir landsins
Ein stór spurning varðandi leyfisveitingu UST á útiræktun (og almenna ræktun, innanhús líka þvæi ekki ...
Dominique 13. 05. 2012 12:41:
Ráðstefna um erfðabreytta ræktun, sleppingu og dreifingu
Spurning hvort fólk sem hefur kynnt sér neikvæðu hlíðar af erfðatækni ættu að fá að ...
Morten Lange 12. 05. 2012 02:03:
Seljum Ísland hvað sem það kostar
Einar Benediktsson um Kínamál: http://visir.is/kinamal-/article/2012705099999
Guðrún Tryggvadóttir 9. 05. 2012 10:04:
Fjölmennt á málþingi Landverndar og Eldvatna - samtaka um náttúruvernd í Skaftárhreppi
Við munum þurfa að berjast og berjast. Griðungar stóriðju munu heimta orku án afláts og ...
Árni Gunnarsson 6. 05. 2012 13:18:
Landneminn alaskalúpína
Sæl Gígja. Ef settar eru niður nægilega háar trjáplöntur í lúpínubreiðurnar,þá vaxa þær vel og ...
Eyjólfur Guðmundsson 2. 05. 2012 09:35:
Samtök áhugafólks um umhverfi og vellíðan í burðarliðnum
Nú veit ég ekki. Reyndu t.d. Félag hjúkrunarfræðinga!
Guðrún Tryggvadóttir 1. 05. 2012 12:08:

Fréttir frá: