Dagatal: Merkisdagar

Uppstigningardagur

Fjörutíu dögum eftir upprisuna steig Jesús upp til himna, segir í Nýjatestamentinu. Þetta gerðist því eðliega á fimmtudegi. Í elstu ritum íslenskum hetiri þessi stund ýmist uppstigningardagur eða uppstigudagur.

Ekki er vitað um neina veraldlega siði á Íslandi í sambandi við þennan dag, þótt talsvert sé til um slíkt úti í Evrópu og sumt harla skondið. Varla er ástæða til að nefna uppstingardagshretið, því að vorhretin voru svo mörg kennd við einstaka daga. En úti í Evrópu þóttust menn víða búast við þrumu eða a.m.k. hellidembu nákvæmlega á þeirri stundu, þegar Jesús setti gat á festinguna sem regnið steyptist niður um einsog flóðgátt.

Annað uppátæki, sem á að hafa tengsl við flug Krists til himna, er að borða sérstaklega fuglakjöt á þessum degi. Fullyrtu menn, að slíkt væri Guði þóknanlegt. Loks hafa karlmenn sumstaðar í Þýskalandi búið sér til þann helgisið að hella sig sætkennda þennan dag öðrum fremur og á það að standa í sambandi við hellidembuna, sem áður var getið. Er þá dagurinn kallaður herradagur.


þessi grein er lengri, lesa meira...



Árni Björnsson
17. maí 2012 07:32
Uppruni:

Einkunn

Deildu með vinum

Dýridagur

Þetta var í pápískri tíð fyrsti fimmtudagurinn á eftir þrenningarhátíð. Hann var fyrst tekinn upp í Róm á 13. öld til að minna á þá umdeildu kenningu katósku kirkjunnar, að Jesús Kristur væri persónulega viðstaddur, þegar menn neyttu hins heilaga sakramentis, líkama hans og blóðs. Því heitir hann líka Krislíkamahátíð. Hann var lögleiddur á Íslandi árið 1326 og var auðvitað ólítill helgidagur, meðan pápíska ríkti. Lúterska kirkjan afneitaði hinsvegar þessum skilningi.


nánar

Árni Björnsson
17. maí 2012 00:37
Uppruni:

Einkunn

Deildu með vinum

Eldaskildagi

Hann var 10. maí, hugsuðu sumir til hans með kvíða áður fyrr, þótt nú sé slíkt úr sögunni. Þann dag var venja, að leiguliðar „skiluðu úr eldunum“, þ.e. færðu jarðeigendum það búfé, sem þeim hafði verið skylt að hafa á fóðrum yfir veturinn sem leigugjald.

Myndin er af kindum með lömb sín í Arnarfirði. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.


nánar

Árni Björnsson
10. maí 2012 08:27
Uppruni:

Einkunn

Deildu með vinum

Krossmessa á vori

Hún er 3. Maí og skal vera haldin í minningu þess, að þá hafi Helena, móðir Konstantínusar mikla keisara, fyndið krossinn Krists með nöglunum í á Hausaskeljastað og látið reisa hann upp á Golgata árið 320. Önnur helgisögn er um krossmessu á haust.

Krossmessan skipaði talsverðan sess í hugum fólks lengi fram eftir öldum, því að fram til 1700 var hún jafnframt vinnuhjúaskildagi, þ.e. sá dagur ársins sem ráðning vinnufólks miðaðist við frá fornu fari. Þegar tímatalsbreytingin var gerð árið 1700 og klipptir voru 11 dagar úr árinu, svo að 28. nóvember kom í stað 17. nóvember, þá færðist vinnuhjúaskildaginn frá 3. til 14. maí, því að ella hefðu húsbændur þóst eiga inni 11 daga hjá vinnuhjúunum.

Vegna vinnuhjúaskildagans var talað um krossmessuár sem ráðningartíma. Sagt var það væri hefð, að hjúið mætti ekki borða miðdegismat hjá fyrri húsbændum, ef það ætlaði að skipta um vist, því þá “æti það sig inn í vistina” á nýjan leik og væri orðið skyldugt til að vera um kyrrt og fara hvergi, ef húsráðendur vildu. Því hafi húsbændur stundum hyllst til að hafa freistandi matarskammt á krossmessu. En ósagt skal látið, hvort þessu hafi almennt verið framfylgt í raun.


nánar

Árni Björnsson
3. maí 2012 01:29
Uppruni:

Einkunn

Deildu með vinum

Fyrsti maí

Hann var áður þekktur bæði sem tveggja postula messa og Valborgarmessa, og á fyrra nafnið við postulana Filippus og Jakob, sem báðir þoldu píslardauða. Síðara nafnið er tengt við Valborgu eða Valpurgis, sem samkvæmt helgisögn var dóttir Ríkharðs helga konungs á Englandi. Eftir sömu heimild varð hún abbadissa við nunnujlaustur í Heidenheim á Þýskalandi og dó árið 779 eða 80. Á legsteini hennar spruttu fram dropar, sem menn söfnuðu í glös og töldu meðal við ýmsum sjúkdómum, einkum í augum.

Síðar varð mikil trú á Valpurgis í Þýskalandi sem verndara gegn göldrum og hamförum eða svo var a.m.k. látið í veðri vaka. Því voru í hennar nafni tendraðir eldar á hólum og hæðum nóttina fyrir fyrsta maí, en þávar talið, að galdranornir og aðrar hamhleypur væru á ferð og flugi á kústsköftum til fundar við sjálfan Fjandann á Blokksfjalli. Um þetta athæfi eru til fjölmargar þjóðsagnir um svallveislur á þessari nóttu og er sú heimfrægust, sem Goethe býr til úr einn þáttinn í Fást. Aðallega eru þetta þýskar sagnir, en þó þekkjast þó einnegin frá Norðurlöndum.

Á Íslandi er þó ekki vitað um neina sérstaka þjóðtrú í tengslum við Valborgarnótt. Löngu er vitað, að hér er upphaflega um að ræða eina hinna mörgu vorhátíða í Evrópu, sem háðar voru á mismunandi tíma eftir landshlutum og breiddargráðum, því að vorið getur eðlilega ekki hafist allstaðar á sömu stundu. MJög útbreidd var þó sú skoðun á síðari öldum í norðanverðri Evrópu, að maí væri fyrsti mánuður sumars. Rómverska gyðjan Maja var tákn æsku, vors og blóma, enda samstofna við íslenska orðið meyja.


þessi grein er lengri, lesa meira...



Árni Björnsson
1. maí 2012 09:10
Uppruni:

Einkunn

Deildu með vinum
1234151617

2005   2006   2007   2008   2009   2010   2011   2012  
jan   feb   mar   apr   maí  

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Nýleg orð í belg

Eldhúsið - Hreinlætisvörur
Sæl, með sítrónusafa!
Guðrún Tryggvadóttir 17. 05. 2012 00:29:
Eldhúsið - Hreinlætisvörur
Hvernig fæ ég glerglös og aðrar glervörur (t.d. kristal) til að verða glansandi (með náttúrulegum ...
AP 16. 05. 2012 23:42:
Gleymdu klórnum og öðrum ónáttúrulegum hreinsiefnum!
Bórax hefur fengist í Handverkshúsinu í Bolholti í Reykjavík (notað til að hreinsa silfur og ...
Auður Páls 16. 05. 2012 23:39:
Græðgin í auðlindir landsins
Ein stór spurning varðandi leyfisveitingu UST á útiræktun (og almenna ræktun, innanhús líka þvæi ekki ...
Dominique 13. 05. 2012 12:41:
Ráðstefna um erfðabreytta ræktun, sleppingu og dreifingu
Spurning hvort fólk sem hefur kynnt sér neikvæðu hlíðar af erfðatækni ættu að fá að ...
Morten Lange 12. 05. 2012 02:03:
Seljum Ísland hvað sem það kostar
Einar Benediktsson um Kínamál: http://visir.is/kinamal-/article/2012705099999
Guðrún Tryggvadóttir 9. 05. 2012 10:04:
Fjölmennt á málþingi Landverndar og Eldvatna - samtaka um náttúruvernd í Skaftárhreppi
Við munum þurfa að berjast og berjast. Griðungar stóriðju munu heimta orku án afláts og ...
Árni Gunnarsson 6. 05. 2012 13:18:
Landneminn alaskalúpína
Sæl Gígja. Ef settar eru niður nægilega háar trjáplöntur í lúpínubreiðurnar,þá vaxa þær vel og ...
Eyjólfur Guðmundsson 2. 05. 2012 09:35:
Samtök áhugafólks um umhverfi og vellíðan í burðarliðnum
Nú veit ég ekki. Reyndu t.d. Félag hjúkrunarfræðinga!
Guðrún Tryggvadóttir 1. 05. 2012 12:08:

+ Fleiri ummæli

Fréttir frá: