Húsið: Sveitin
Stöðnun í landbúnaði
Íslenska landbúnaðarkerfið heldur aftur af eðlilegri þróun búskaparhátta. Kerfið snýst fyrst og fremst um sauðfjárrækt og nautgriparækt og stuðlar að því að bændur haldi áfram að framleiða þar sem framleitt hefur verið. Þetta segir Daði Már Kristófersson, dósent í hagfræði við Háskóla Íslands.
Daði segir miklar breytingar framundan í landbúnði, á Íslandi og í heiminum öllum, meðal annars vegna hækkandi matvælaverðs. Frá árinu 2000 hafi matvælaverð hækkað - í fyrsta skipti frá lokum seinni heimsstyrjaldar. Hærra verð, kynbætur og loftslagsbreytingar, valdi miklum breytingum og bæti samkeppnisstöðu jaðarsvæða eins og Íslands. hér séu stór tækifæri í landbúnaði. En núverandi kerfi styðji ekki við nýjungar.
Hlusta hér á viðtalið við Daða Má á vef Ríkisútvarpsins.
Ljósmynd; Kindur í réttum, Guðrún A. Tryggvadóttir.
nánar
Ríkisútvarpið
13. apríl 2012 09:52
Uppruni: RÚV
Einkunn

Ef smellt er á hluti birtast nánari upplýsingar
Sveitin - Ræktun
Í heiminum eru til um 10 þúsund tegundir grasa. Meðal þeirra eru korntegundirnar hafrar, rúgur, hveiti, bygg, hrís og maís. Fyrir um 10 þúsund árum byrjaði fólk að hagnýta sér þessar tegundir til matar, þegar það uppgötvaði gæði fræjanna. Frá þeim tíma hafa þessar tegundir verið ein meginstoð í mat manna. Allt frá landnámi hefur þurrt hey verið nýtt sem vetrarfóður fyrir búpening hér á landi. Grasið á sumrin og heyið á veturna verður þannig að kjöti og mjólk sem hefur átt sinn þátt í að halda í okkur lífinu.
Garðrækt hefur aftur á móti ekki langa sögu á Íslandi. Það var ekki fyrr en seint á 18. öld að farið var að gera tilraunir með kartöflurækt og ræktun annarra matjurta hér á landi. Hins vegar var því þannig háttað í Englandi og víða á meginlandi Evrópu fyrr á tímum, að enginn bóndi lét sér detta í hug að kaupa grænmeti, eða egg eða skinku. Bændurnir stunduðu matjurta- og garðrækt á sjálfbæran hátt og voru einnig með hænur og svín í garðinum.
Vélvæðing landbúnaðarins hefur hins vegar umbreytt aðferðum við búskap og má segja að í dag sé hann víða stunduð sem nokkurs konar iðnaður.
Ræktun matjurtagarða var ekki í tísku á tímabili og voru matjurtagarðar yfirleitt faldir út í horni garðsins. Nú um stundir er hins vegar að verða aftur mjög vinsælt að rækta matjurtir, svo vinsælt að fólk keppist um að fá aðgang að jarðnæði til að geta stundað slíka ræktun.
Gróðurhús eru notuð á Íslandi til að rækta gómsæta tómata og safaríkar gúrkur, auk annars grænmetis. Íslenskt grænmeti þykir mjög bragðgott og er ástæðan fyrst og fremst sú staðreynd að íslenska vatnið er mjög hreint og tært og er með besta vatni sem fáanlegt er á jörðinni.
Nánari upplýsingar um það hvernig er hægt að skipuleggja matjurtagarðinn, rækta og nýta má finna í Eldhúsgarðinum hér á vefnum. Ennfremur er hægt að nálgast upplýsingar um hvernig má nýta hinar margvíslegustu viiltu jurtir og grænmeti með því að skoða Grasa-Guddu Náttúrunnar.
nánar
Náttúran er
24. apríl 2010 15:26
Uppruni: Náttúran.is
Einkunn
Ilmreyr og reyrgresi

Sá er heppinn sem lært hefur að þekkja reyrgresi og veit um stað þar sem það vex og þá oft í stórum breiðum. Þrátt fyrir nafnið ilmar reyrgresið sterkar en hinn eiginlegi ilmreyr. Lyktin kemur fyrst fram við þurrkun. Besta ráðið til að þekkja grösin að er að merkja hvar þau finnast, taka myndir eða teikna og skrifa í vasabókina sína. Síðan er hægt að fara ár eftir ár, safna í visk og leggja í uppáhaldsskúffuna sína og taka svo fram ilmandi föt allan veturinn eins og langaömmur okkar gerðu.
þessi grein er lengri, lesa meira...
Hildur Hákonardóttir og Hörður Kristinsson
19. apríl 2010 00:30
Uppruni: Náttúran.is
Einkunn
Tjald-útilega

Fátt er skemmtilegra en að fara í tjaldútilegu og njóta náttúrunnar beint í æð í góðra vina hópi. Á Íslandi má tjalda við aðalvegi og á óræktuðu landi yfir nótt. Á ræktuðu landi í einkaeign þarf leyfi. Ef tjöldin eru fleiri en 3 þarf leyfi, einnig ef tjalda á í fleiri en 3 nætur.
Að jafnaði er leyfilegt að tjalda við vegi utan hins almenna vegakerfis. Um allt land eru einnig sérstök tjaldsvæði með góðum aðbúnaði sem að þægilegt er að nýta sér. Mundu að skila svæðinu eins og þú komst að því.
þessi grein er lengri, lesa meira...
Náttúran
19. apríl 2010 00:21
Uppruni: Náttúran.is
Einkunn
Ætihvannarhóstatöflur
Einn af eiginleikum ætihvannarinnar er að vinna gegn öndunarerfiðleikum og hósta. Einfalt og skemmtilegt er að gera hvannarhóstatöflur sjálfur. Maður tekur hvannar-stöngul og sker langsum, treður í glerkrukku og hellir flórsykri yfir, eins mikið og hægt er að troða í krukkuna. Látið liggja í 2-14 daga. Hristið af og til. Stönglarnir eru síðan teknir upp úr krukkunni, vökvinn þykktur með aðeins meiri flórsykri og látið dropa eða sprautað með kúasprautu á smjörpappír og látið þorna.
nánar
Náttúran er
19. apríl 2010 00:13
Uppruni: Dr. Christian Osika / Náttúran.is
Einkunn

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Viðburðadagatal
| sun | mán | þri | mið | fim | fös | lau | |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 29 | 30 | 01 | 02 | 03 | 04 | 05 | maí |
| 06 | 07 | 08 | 09 | 10 | 11 | 12 | maí |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | maí |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | maí |
| 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 01 | 02 | jún |
| 03 | 04 | 05 | 06 | 07 | 08 | 09 | jún |
| 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | jún |
| 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | jún |
| 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | jún |

Nýleg orð í belg
Hvernig fæ ég glerglös og aðrar glervörur (t.d. kristal) til að verða glansandi (með náttúrulegum ...
AP 16. 05. 2012 23:42:
Bórax hefur fengist í Handverkshúsinu í Bolholti í Reykjavík (notað til að hreinsa silfur og ...
Auður Páls 16. 05. 2012 23:39:
Ein stór spurning varðandi leyfisveitingu UST á útiræktun (og almenna ræktun, innanhús líka þvæi ekki ...
Dominique 13. 05. 2012 12:41:
Spurning hvort fólk sem hefur kynnt sér neikvæðu hlíðar af erfðatækni ættu að fá að ...
Morten Lange 12. 05. 2012 02:03:
Einar Benediktsson um Kínamál: http://visir.is/kinamal-/article/2012705099999
Guðrún Tryggvadóttir 9. 05. 2012 10:04:
Við munum þurfa að berjast og berjast. Griðungar stóriðju munu heimta orku án afláts og ...
Árni Gunnarsson 6. 05. 2012 13:18:
Sæl Gígja. Ef settar eru niður nægilega háar trjáplöntur í lúpínubreiðurnar,þá vaxa þær vel og ...
Eyjólfur Guðmundsson 2. 05. 2012 09:35:
Nú veit ég ekki. Reyndu t.d. Félag hjúkrunarfræðinga!
Guðrún Tryggvadóttir 1. 05. 2012 12:08:
+ Fleiri ummæli








