Húsið: Baðherbergið

Ef smellt er á hluti birtast nánari upplýsingar
Baðherbergið - Lyfjaskápur
Oft er lyfjaskápur á baðherberginu en hann þarf að vera nógu hátt á vegg eða læstur til að litlu mannverurnar nái ekki til þeirra. Barnalæsingar þurfa að vera á neðri skápum ef þar eru geymd lyf, hreinsivörur eða hreinlætisvörur.
Gömul lyf eiga ekki heima í heimilisruslinu heldur á að fara með þau í apótek til förgunar. Efnamóttakan sér síðan um rétta förgun spilliefna og lyfja.
nánar
Náttúran er
16. mars 2012 10:37
Uppruni: Náttúran.is
Einkunn

Ef smellt er á hluti birtast nánari upplýsingar
Baðherbergið - Skyndihjálp
Hringið í Neyðarlínuna 112 ef slys ber að höndum.
Ef um minni skrámur eða veikindi er að ræða er góður sjúkrakassi eitt það allra nauðsynlegasta á heimilinu. Einnig er gott að hafa mikilvægustu símanúmer á ísskápshurðinni og á miða í sjúkrakassanum. Plástrar í ýmsum stærðum, sáraumbúðir, teygjubindi, verkjalyf og sótthreinsandi áburður er það allra nauðsynlegasta.
Það er staðreynd að flest slys hér á landi verða innan veggja heimilisins. Sérstaklega þarf að gæta varúðar ef smábarn er á heimilinu. Þá þarf að taka öll sterk efni og þvottaefni, lyf og rafhlöður svo eitthvað sé nefnt og geyma þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Best er að fara reglulega á námskeið í hjálp í viðlögum og vera þess meðvitaður að alltaf getur eitthvað komið fyrir og nauðsynlegt er að vita hvernig maður bregst best við tilteknum aðstæðum. Líf getur legið við, þitt eða annarra.
Víða um landið halda deildir Rauða krossins skyndihjálparnámskeið fyrir almenning. Á hverju ári fara um 6 þús. til 8 þús. manns á slíkt námskeið. Samkvæmt samningi við íslensku ríkisstjórnina, hefur Rauði Kross Íslands yfirumsjón með fræðslu um skyndihjálp, leggur fram kennsluefni og tryggir að verið sé að nota nýjustu aðferðir. Rauði Krossinn heldur einnig námskeið um félagslega- og sálræna aðstoð, og skipuleggur neyðaraðstoð þegar stór slys verða eða náttúruhamfarir.
Símanúmer hjá heimilislækni, aðstandendum og næstu heilsugæslustöð ættu að vera í sjúkrakassanum og á ísskápshurðinni. Einnig upplýsingar um ofnæmi, lyfjatöku eða annað sem kemur heilsu heimilisfólks við.
nánar
Náttúran er
18. janúar 2012 16:44
Uppruni: Náttúran.is
Einkunn

Ef smellt er á hluti birtast nánari upplýsingar
Húsið og umhverfið
Heimilið er eitt það dýrmætasta sem við eigum. Þar eigum við skjól fyrir veðri og vindum hversdagsins. Þar fáum við hvíld og endurnærum líkama og sál. Með því að stjórna umhverfismálum heimilisins náum við einnig stjórn á umhverfismálum heimsins. Ef hver og einn hugsaði af kostgæfni um heimili sitt og nánasta umhverfi myndi margt fara á betri veg. Húsið er því lykillinn bæði að vistvænum lífsstíl fjölskyldunnar og að lausn umhverfismála heimsins.
Í Húsinu og umhverfi þess eru 12 rými. Ef smellt er á utanhússrýmin, herbergin og síðan einstaka hluti þegar komið er inn í rýmin, birtast upplýsingar um hvernig umhverfi og heilsa geta tengst þeim. Húsið er þannig í raun gagnabanki um umhverfisvænan lífsstíl og lykill að umhverfislausnum fyrir heimilið. Hafa ber einnig í huga að umhverfisvænn lífsstíll sparar peninga og er hagkvæmur þegar til lengri tíma er litið bæði fyrir menn og náttúru.
nánar
Náttúran er
30. ágúst 2007 10:50
Uppruni: Náttúran.is
Einkunn

Ef smellt er á hluti birtast nánari upplýsingar
Baðherbergið - Vefnaðarvörur
Mörg litarefni og framleiðsluferli vefnaðarvöru fela í sér að efnið er meðhöndlað með sýruböðum, og eiturefnum af ýmsum gerðum, sumum jafnvel skaðlegum heilsunni. Eins er framleiðslan sjálf oft uppspretta alvarlegra umhverfisáhrifa og heilsutaps fólks. Sum efni eru umhverfisvænni en önnur.
Bómull er eitt skaðlegasta hráefnið vegna mikillar eiturefnanotkunar við ræktun þess. Fyrir hvert kg. af bómull sem er ræktað þarf um eitt kg. af eiturefnum. Sé hins vegar valin lífrænt ræktuð bómull þá er eiturefnanotkun næstum bönnuð og notkun skaðlegra efna við meðhöndlun efnanna haldið í algeru lágmarki.
Sanngirnisvottun er staðfesting á því að varan er unnin á siðferðislega sanngjarnan hátt, án skaðlegra áhrifa fyrir starfsmenn og að þeir fái sanngjörn laun fyrir vinnuna.
Við val á vefnaðarvörum í baðherbergið ætti að taka tillit til þess að þær þarf oft að þvo og þær þurfa því að vera endingargóðar.
Að ofannefndu má vera ljóst að í öllu falli er umhverfisvænast að velja handklæði, þvottaklúta, bleyjur og gardínur úr lífrænni bómull og/eða sem eru umhverfismerkt af viðurkenndum aðilum. Innlend framleiðsla hefur þann kost að hafa ekki verið flutt um langan veg sem gerir hana umhverfisvænni en samsvarandi vöru sem flutt er með skipi eða flugvél langan veg.
Örtrefjaklútar eru umhverfisvænsta lausnin til þrifa því þeir gera hreinsilög næsta óþarfan. Nauðsynlegt er að þvo tuskurnar reglulega til þess að þær safni ekki örverum.
nánar
Náttúran er
22. júní 2007 02:07
Uppruni: Náttúran.is
Einkunn

Ef smellt er á hluti birtast nánari upplýsingar
Baðherbergið - Snyrtivörur
Snyrtivörur varða daglega umhirðu líkama okkar. Margar snyrtivörur höfða mest til skjótfenginna fegurðaráhrifa en taka lítið tillit til áhrifa á heilsu notandans eða umhverfisáhrifa til lengri tíma. Til eru lífrænt vottaðar snyrtivörur, umhverfisvottaðar og sanngirnisvottaðar. Snyrtivörur geta innihaldið bæði tilbúin og náttúruleg efni. Stundum koma náttúrulegu efnin beint úr jurtum, en oft er búið að einangra þau til að fá nákvæmlega þá virkni sem óskað er eftir í vörunni. Fræðiheiti sem hljóma ónáttúruleg geta verið nöfn á einstökum náttúrulegum efnasamböndum.
Í snyrtivörudeildinni hér á Náttúrumarkaðinum eru allar upplýsingar af umbúðum skráðar nákvæmlega í samræmi við gildandi reglur. Fólk getur haft ofnæmi fyrir einstökum efnum, þótt þau séu náttúruleg, til að mynda fyrir hnetum eða ilmefnum. Skoðið því vel öll innihaldsefnin.
Einnig er hægt að gera sínar eigin náttúrlegu snyrtivörur með lítlli fyrirhöfn. Maska, krem og baðolíur má t.d. gera úr eggjum, höfrum, gúrkum, hnetum, sítrónum og fjöldanum öllum af jurtum sem vaxa villtar um allt land og auðvitað úr góðum olíum. Það er enginn vandi að prófa sig áfram. Hægt er að byrja með því að setja uppáhalsjurtina sína í góða olíu og láta standa í nokkra daga, t.d. birkiblöð í ólífuolíu. Yndislegt!
nánar
Náttúran er
21. júní 2007 15:29
Uppruni: Náttúran.is
Einkunn

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Viðburðadagatal
| sun | mán | þri | mið | fim | fös | lau | |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 29 | 30 | 01 | 02 | 03 | 04 | 05 | maí |
| 06 | 07 | 08 | 09 | 10 | 11 | 12 | maí |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | maí |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | maí |
| 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 01 | 02 | jún |
| 03 | 04 | 05 | 06 | 07 | 08 | 09 | jún |
| 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | jún |
| 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | jún |
| 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | jún |

Nýleg orð í belg
Hvernig fæ ég glerglös og aðrar glervörur (t.d. kristal) til að verða glansandi (með náttúrulegum ...
AP 16. 05. 2012 23:42:
Bórax hefur fengist í Handverkshúsinu í Bolholti í Reykjavík (notað til að hreinsa silfur og ...
Auður Páls 16. 05. 2012 23:39:
Ein stór spurning varðandi leyfisveitingu UST á útiræktun (og almenna ræktun, innanhús líka þvæi ekki ...
Dominique 13. 05. 2012 12:41:
Spurning hvort fólk sem hefur kynnt sér neikvæðu hlíðar af erfðatækni ættu að fá að ...
Morten Lange 12. 05. 2012 02:03:
Einar Benediktsson um Kínamál: http://visir.is/kinamal-/article/2012705099999
Guðrún Tryggvadóttir 9. 05. 2012 10:04:
Við munum þurfa að berjast og berjast. Griðungar stóriðju munu heimta orku án afláts og ...
Árni Gunnarsson 6. 05. 2012 13:18:
Sæl Gígja. Ef settar eru niður nægilega háar trjáplöntur í lúpínubreiðurnar,þá vaxa þær vel og ...
Eyjólfur Guðmundsson 2. 05. 2012 09:35:
Nú veit ég ekki. Reyndu t.d. Félag hjúkrunarfræðinga!
Guðrún Tryggvadóttir 1. 05. 2012 12:08:
+ Fleiri ummæli








