Náttúran.is: Fyrirtækið
Hlutverk Náttúrunnar

Náttúran.is er upplýsingaveita, fréttamiðill og söluaðili fyrir allt sem tengist náttúru og umhverfi á einhvern hátt.
Náttúran.is er sjálfstætt starfandi vefsetur með aðaláherslu á að þjóna hinum almenna neytanda með áreiðanlegum upplýsingum um allt sem snertir umhverfi okkar og heilsu. Í raun er hér allt undir, nærumhverfi okkar og náttúran sjálf sem og heimilið, neyslan og fyrirtækin sem upplýstir borgarar vilja fá til aðstoðar við að skapa sjálfbæra framtíð.
Jafnt fyrirtækjum sem félagasamtökum, stofnunum og almenningi er boðið að nýta sér þennan óháða vettvang til að koma upplýsingum á framfæri og eiga skoðanaskipti.
Náttúran.is á að vera náttúrutenging nútímamannsins og „umhverfislögga“ í jákvæðum skilningi.
þessi grein er lengri, lesa meira...
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
1. mars 2012 12:54
Uppruni: Náttúran.is
Einkunn
Náttúran.is - um fyrirtækið
Náttúran.is - vefur með umhverfisvitund
Náttúran er ehf.
Kt.: 411106-1870
Breiðahvammi
816 Ölfus
Sími: 483 1500
Fax: 483 1518
Netfang: nature@nature.is
Sjá nánar um starfsfólk, þróunarteymi, hluthafa, umhverfisstefnu og þjónustuliði Náttúrunnar.
þessi grein er lengri, lesa meira...
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
12. janúar 2012 11:58
Uppruni: Náttúran.is
Einkunn
Saga Náttúrunnar
Hugmyndin að Náttúrunni.is fæddist sumarið 2002 og hefur verið í þróun æ síðan. Frumkvöðull verkefnisins er Guðrún Arndís Tryggvadóttir myndlistarmaður (sjá ferilskrá). Hugmyndin byggir á því að nota veraldarvefinn sem tæki til að skapa sjálfbært samfélag. Vefurinn er bæði fréttamiðill og upplýsingaveita um umhverfisvænan lífsstíl. Markmiðið er að gera neytendum umhverfisvænar lausnir sýnilegri og aðgengilegri með því að tengja á milli vistvænnar aðferðafræði á öllum sviðum og raunverulegs vöru- og þjónustuframboðs í landinu.
Náttúran hefur gengið í gegnum langt ferli og hefur mótast í samvinnu við fjölda aðila þann tíma sem vefurinn hefur verið í þróun. Haustið 2005 var frumgerð Náttúrunnar, sem nefndist Grasagudda.is, sett í loftið. Á Grasa-Guddu var leitast við að tengja saman upplýsingar um umhverfismál hvaðanæva að og flytja fréttir. Grasagudda.is sameinaðist síðan Náttúrunni.is þann 25. apríl 2007. Náttúran.is mun því fagna 5 ára afmæli sínu þ. 25. apríl 2012.
Enska útgáfa Náttúrunnar Nature.is fór í loftið í júní 2008.
Þýska útgáfa Náttúrunnar Natur.is fór í loftið í apríl 2010.
þessi grein er lengri, lesa meira...
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
2. janúar 2012 20:35
Uppruni: Náttúran.is
Einkunn
Náttúran.is - starfsfólkið
Einar Bergmundur Arnbjörnsson, tækniþróunarstjóri
Sjá ferilskrá Einars Bergmundar
Netfang: einar@nature.is
Sími: 483 1500
Gsm: 892 5657
Guðrún Arndís Tryggvadóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri
Sjá ferilskrá Guðrúnar Arndísar
Netfang: gunna@nature.is
Sími: 483 1500
Gsm: 863 5490
Ingibjörg Elsa Björnsdóttir, jarð- og umhverfisefnafræðingur, þýðandi
Sjá ferilskrá Ingibjargar Elsu
Netfang: ingibjorg@nature.is
Sími: 483 1500
þessi grein er lengri, lesa meira...
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
1. janúar 2012 11:04
Uppruni: Náttúran.is
Einkunn
Þróunarteymi vefsins Náttúran.is
Anna Karlsdóttir, mannvistarlandfræðingur - grænkortaþróun.
Áslaug Friðriksdóttir, sálfræðingur og vefviðmótssérfræðingur - viðmótsráðgjöf.
Ástríður Sigurðardóttir, matvælafræðingur - textagerð.
Bjarnheiður Jóhannsdóttir, myndlistarmaður og frumkvöðlaráðgjafi - fjármálaráðgjöf.
Claudia Spagnol, kennari - prófarkalestur (þýska).
Einar Bergmundur Arnbjörnsson, tölvunarfræðingur - tækniþróunarstjórn.
Einar Einarsson, vélaverkfræðingur - textagerð.
Finnur Sveinsson, viðskipta- og umhverfisfræðingur - umhverfisráðgjöf og textagerð.
Guðrún A. Tryggvadóttir, myndlistarmaður - frumkvöðull verkefnisins, ritstjórn, textahöfundur, þýðingar (enska og þýska), viðmótshönnun og grafísk hönnun, ljósmyndun, verkefnis-, markaðs- og fjármálastjórn.
Hildur Hákonardóttir, myndlistarmaður og rithöfundur - textagerð og ráðgjöf.
Hulda Steingrímsdóttir, líffræðingur og umhverfisstjórnunarfræðingur - umhverfisráðgöf.
Ingibjörg Elsa Björnsdóttir, jarð- og umhverfisefnafræðingur, þýðandi - umhverfisráðgjöf, þýðingar (enska) og textagerð.
Jóhann Páll Jóhannsson, nemi - þýðingar.
Magnús Matthíasson, kennari - gagnavinnsla og skráningar.
Móna Róbertsdóttir Becker, nemi - gagnavinnsla, ljósmyndun, þýðingar (enska og þýska) og textagerð.
Páll Kr. Pálsson, hagverkfræðingur - fjármálaráðgjöf.
Paul Herman - prófarkalestur (enska).
Sara Löve Daðadóttir - ráðgjöf.
Signý Kolbeinsdóttir, vöruhönnuður - grafísk hönnun.
Sigurður H. Pálsson, þýðandi - þýðingar (enska).
Sævar Kristinsson, netráðgjafi - ráðgjöf.
Tryggvi Hrólfsson, nemi - þýðingar (enska).
Vala Smáradóttir, nemi - gagnavinnsla og textagerð.
Þorbjörn Stefánsson, rekstrarfræðingur - verslunarráðgjöf.
nánar
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
13. desember 2011 10:30
Uppruni: Náttúran.is
Einkunn

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Viðburðadagatal
| sun | mán | þri | mið | fim | fös | lau | |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 29 | 30 | 01 | 02 | 03 | 04 | 05 | maí |
| 06 | 07 | 08 | 09 | 10 | 11 | 12 | maí |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | maí |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | maí |
| 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 01 | 02 | jún |
| 03 | 04 | 05 | 06 | 07 | 08 | 09 | jún |
| 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | jún |
| 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | jún |
| 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | jún |

Nýleg orð í belg
Hvernig fæ ég glerglös og aðrar glervörur (t.d. kristal) til að verða glansandi (með náttúrulegum ...
AP 16. 05. 2012 23:42:
Bórax hefur fengist í Handverkshúsinu í Bolholti í Reykjavík (notað til að hreinsa silfur og ...
Auður Páls 16. 05. 2012 23:39:
Ein stór spurning varðandi leyfisveitingu UST á útiræktun (og almenna ræktun, innanhús líka þvæi ekki ...
Dominique 13. 05. 2012 12:41:
Spurning hvort fólk sem hefur kynnt sér neikvæðu hlíðar af erfðatækni ættu að fá að ...
Morten Lange 12. 05. 2012 02:03:
Einar Benediktsson um Kínamál: http://visir.is/kinamal-/article/2012705099999
Guðrún Tryggvadóttir 9. 05. 2012 10:04:
Við munum þurfa að berjast og berjast. Griðungar stóriðju munu heimta orku án afláts og ...
Árni Gunnarsson 6. 05. 2012 13:18:
Sæl Gígja. Ef settar eru niður nægilega háar trjáplöntur í lúpínubreiðurnar,þá vaxa þær vel og ...
Eyjólfur Guðmundsson 2. 05. 2012 09:35:
Nú veit ég ekki. Reyndu t.d. Félag hjúkrunarfræðinga!
Guðrún Tryggvadóttir 1. 05. 2012 12:08:
+ Fleiri ummæli








